149. löggjafarþing — 87. fundur,  1. apr. 2019.

leiðrétting vegna búsetuskerðinga TR.

[15:32]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Nú er það þannig að þær stofnanir sem eiga í hlut heyra ekki undir fjármála- og efnahagsráðuneytið en það er sjálfsagt að reyna að bregðast við. Þau orð sem hv. þingmaður vísar til að ég hafi látið falla voru einfaldlega á þá leið að hafi verið brotinn réttur á fólki verði ekki spurt um það hvort fjárheimildir séu til staðar til að leiðrétta það, heldur víkur ríkið sér ekki undan því að gera upp í samræmi við lög. Þetta er eins og ef dómur fellur ríkinu í óhag, þá er málið bara gert upp.

Í mínum huga hefur þetta mál ekki snúist um vilja eða viljaleysi til að gera málið upp heldur snýst málið um að rétt sé gert upp. Það er erfitt að fara í stuttu máli í efnisatriði málsins, enda er það svo sem ekki sérstaklega á mínu málefnasviði eins og ég vék að. En það snýst um að Tryggingastofnun hafi ekki verið heimilt að gefa sér ákveðnar forsendur við útreikninga á bótum þeirra sem hluta ævi sinnar bjuggu annars staðar. Vegna alls þessa hefur þurft að fara yfir hvert og eitt mál og reikna upp á nýtt. Mér er ekki kunnugt um það nákvæmlega hver sú staða er en ég hefði haldið að þingnefndum væri í lófa lagið að fylgjast með því, fá upplýsingar um þá stöðu. Síðan þurfum við væntanlega að velta því fyrir okkur hvernig við viljum haga þeim málum til framtíðar. Ég hef ávallt lagt á það áherslu að svona réttindareglur væru sem mest samræmdar þannig að (Forseti hringir.) ef við veitum réttindi til þeirra sem flytja hingað viljum við sjá að það sama gerist þegar Íslendingar flytja til viðkomandi landa.