149. löggjafarþing — 87. fundur,  1. apr. 2019.

kostnaður við smíði nýs Herjólfs.

[15:39]
Horfa

samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni, þegar ferjan kemur verður það góður hagur fyrir Vestmannaeyinga og landsmenn alla og því fyrr, þeim mun betra. Staðan sem þetta mál er í er með svolitlum ólíkindum, að á síðustu stigum skuli koma fram þessi krafa frá skipasmíðastöðinni í ljósi þess að samningsgerðin er bæði að mati Vegagerðarinnar og sérfróðra aðila þar um mjög góður samningur sem heldur vel og um öll aukaverk hafa verið gerðir sérstakir samningar. Mér vitanlega hafa samskiptin verið með eðlilegum hætti frá því að vegamálastjóri mætti fyrir fund samgöngunefndar og það hafa komist á samskipti milli lögfræðinga skipasmíðastöðvarinnar og Vegagerðarinnar. Nákvæmlega hvar málið er statt í augnablikinu þori ég ekki að fullyrða, en skal koma þeim upplýsingum bæði til þingmannsins og þingheims við fyrsta tækifæri.