kostnaður við smíði nýs Herjólfs.
Virðulegur forseti. Ég tek undir það með hv. þingmanni að það er mikilvægt að við fáum niðurstöðu í þetta mál sem fyrst. Ég veit að hörðum höndum er unnið að því að finna þá lausn. Ég hef ekki fengið upplýsingar um annað en að þessi samskipti séu með eðlilegum hætti, en svari við þeirri nákvæmu spurningu þingmannsins um hver þessara þriggja leiða hafi að lokum orðið fyrir valinu skal ég koma til þingmannsins og þingheims frá ráðuneytinu. Þetta skiptir miklu máli, ekki bara fyrir Vestmannaeyinga heldur Ísland allt. Almenningur á Íslandi er með skattfé sínu að kaupa þessa ferju. Það getur vel verið að þessi krafa hafi byggst á því að þetta sé raunverulegur kostnaður við að byggja svona skip en ef svo hefði verið hefðu menn átt að bjóða það verð í skipið og þá hefðu menn væntanlega snúið sér eitthvað annað og kannski ekki setið í þeirri stöðu sem við erum í í dag. Skipið átti að koma hingað sl. sumar og tafir og dagsektir (Forseti hringir.) sem fyrirtækið hefur fengið á sig eru væntanlega það sem það er að reyna að skapa sér stöðu til að semja um.