149. löggjafarþing — 87. fundur,  1. apr. 2019.

skráning og mat fasteigna.

212. mál
[15:46]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Willum Þór Þórssyni fyrir hans orð um að þetta beri að endurskoða. Ég fagna því og vil aðallega benda á eitt atriði varðandi fasteignamatið, hvernig það er ákvarðað. Það eru nokkrar leiðir til þess og þarna er verið að afla frekari upplýsinga um svokallaða tekjuleið og renna stoðum undir hana. Það eru fleiri leiðir til að ákveða verð fasteigna samkvæmt fasteignamati. Ég vil vara við því í þessari stuttu ræðu að þetta getur valdið víxlhækkun leiguverðs og fasteignamats, ef það eltir hvort annað á milli ára.