149. löggjafarþing — 87. fundur,  1. apr. 2019.

Jafnréttissjóður Íslands.

570. mál
[17:05]
Horfa

Frsm. allsh.- og menntmn. (Þórhildur Sunna Ævarsdóttir) (P) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágæta sögulega yfirferð. Þetta vissi ég t.d. ekki. Áhugavert að vita það.

Ég get tekið undir að það er fínasta hugmynd að láta fara fram heildstæða rannsókn á þessu. Og þar sem hv. þingmaður minnist á að „klastra saman“ hlutum og að okkur vanti yfirsýn er þetta nokkuð sem mér hefur oft orðið hugsað til, einmitt varðandi málefni sem tengjast kynjajafnrétti og fögrum fyrirheitum í þeim efnum.

Mér verður t.d. hugsað til heildstæðrar aðgerðaáætlunar gegn kynferðisofbeldi sem vissulega lítur mjög vel út á blaði en þegar ég hef reynt að kalla eftir sundurliðun á því í hvað þessir peningar fara hefur töluvert skort á svör. Þetta var t.d. í síðustu fjármálaáætlun þegar núverandi ríkisstjórn hreykti sér af því að þessi áætlun væri fullfjármögnuð en þegar ég kallaði eftir því að fá einhvers konar kostnaðarmat, hvað hver þáttur kostaði og hvernig þessi áætlun væri eiginlega fullfjármögnuð og hversu miklir peningar færu í þetta eða hitt, var ekki hægt að fá svör við því.

Það var mjög áhugavert að heyra að sú áætlun væri fullfjármögnuð. Það er erfitt að hafa yfirsýn yfir þetta og mér finnst við hv. þingmenn hafa takmörkuð tæki til að fylgja svona áætlunum eftir. Þetta á svo sem ekkert bara við um kynjajafnréttismálin heldur ýmsar aðrar þingsályktanir sem koma hér í gegn og við höfum mjög takmarkaða getu til að athuga hvort í raun og veru sé verið að framfylgja vilja þingsins. Eins og þegar kemur að þessari aðgerðaáætlun en líka núverandi aðgerðaáætlun gegn ofbeldi sem er til meðferðar í hv. allsherjar- og menntamálanefnd. Þar á að splæsa nokkrum tugum milljóna og nota t.d. þennan hluta til að tala þetta svolítið upp.

Mér finnst stundum eins og það sé verið að gera bútasaum þar sem á að taka peninga úr þessu verkefni eða hinu en láta öll verkefnin líta rosalega vel út saman án þess að við fáum heildstæða yfirsýn með kostnaðarmati, kostnaðargreiningu og einhvers konar framkvæmdaáætlun sem hægt er að reiða sig á annað en fagurt gjálfur. Það má því gera betur í þessum efnum.