149. löggjafarþing — 87. fundur,  1. apr. 2019.

Jafnréttissjóður Íslands.

570. mál
[17:07]
Horfa

Birgir Ármannsson (S):

Herra forseti. Ég ætla í örstuttu máli að gera grein fyrir þeim fyrirvara sem ég hafði við afgreiðslu málsins út úr allsherjar- og menntamálanefnd. Hann lýtur í raun og veru ekki að meginefni tillögunnar sem hér liggur fyrir, þ.e. þeirri breytingu á stjórn sjóðsins og verksviði sem gert er ráð fyrir í tillögu hæstv. forsætisráðherra. Ég held að öll þau verkefni sem verið er að bæta við í upptalninguna hjá sjóðnum geti vel átt heima þar og að sú breyting sem varðar það hvernig skipan sjóðstjórnarinnar er breytt sé í sjálfu sér jákvæð.

Ég vildi hins vegar setja ákveðinn fyrirvara varðandi ummæli í nefndaráliti allsherjar- og menntamálanefndar um framhald sjóðsins þar sem rætt er um að hann verði starfræktur til frambúðar. Þegar ákvörðun var tekin árið 2015 um stofnun sjóðsins var gert ráð fyrir að hér væri um að ræða fimm ára verkefni. Þannig var það auðvitað hugsað frá upphafi. Ég segi fyrir sjálfan mig að ég vil ekki útiloka að til þess geti komið að þessum málum verði með einhverjum hætti komið fyrir til framtíðar. En ég er ekki tilbúinn að taka jafn sterkt til orða í þeim efnum og nefndin gerir í nefndaráliti sínu. Ég held, m.a. með hliðsjón af samtölum sem áttu sér stað milli tveggja hv. þingmanna hér á undan, hv. þm. Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, að áður en stefnumarkandi ákvörðun er tekin um að hafa framhald á starfi sjóðsins þurfi að fara fram einhvers konar mat á þeim verkefnum og þeim árangri sem hann hefur náð á starfstíma sínum og einnig heildstæð stefnumótun um styrkveitingar til rannsókna á þessu sviði.

Þessu vildi ég halda til haga í umræðunni, en leggst að sjálfsögðu ekki gegn framgangi málsins.