149. löggjafarþing — 87. fundur,  1. apr. 2019.

loftslagsmál.

758. mál
[17:31]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir spurningarnar. Ég tek undir það með hv. þingmanni að málefni aðlögunar að loftslagsbreytingum séu afskaplega mikilvægt atriði sem við Íslendingar höfum ekki sinnt nærri því nógu mikið hingað til. Þess vegna er nú m.a. verið að setja þetta ákvæði inn í lögin eða gera tillögu þar um.

Það sem ég hef þegar gert er að fela loftslagsráði að koma með tillögu að því hvernig sé best að vinna slíka áætlun um aðgerðir og á ég von á því að fá frá þeim, væntanlega á vormánuðum, eitthvað meira um það. Annars geri ég ráð fyrir að talsvert margir aðilar þurfi að koma að þessari vinnu, eðli máls samkvæmt. Það eru auðvitað sveitarfélög, ýmsar stofnanir hins opinbera sem bera ábyrgð á t.d. höfnum og vegum og þar fram eftir götunum þannig að ég tel að þetta sé vinna sem gæti tekið allmikinn tíma og verið með ríkri aðkomu ýmissa aðila.

Varðandi verkefnisstjórn og hlutverk hennar og síðan hlutverk loftslagsráðs er í rauninni hlutverk verkefnisstjórnarinnar að vinna áætlanir hins opinbera, þ.e. aðgerðaáætlunina um mótvægisaðgerðir, en loftslagsráðsins er að rýna þá áætlanagerð og veita verkefnisstjórninni aðhald og leiðbeiningar um hvað þeim t.d. kann að þykja vanta, hvað þeim finnist að þurfi að vinna öðruvísi o.s.frv.

Varðandi stofnanir hins opinbera og skyldu til að vinna stefnu í loftslagsmálum er hugmyndin sú að það sé hver og ein sem sinni því. Ég útiloka þó ekki að í einhverjum tilfellum (Forseti hringir.) geti skyldar stofnanir mögulega hjálpast að við slíkt.