loftslagsmál.
Hæstv. forseti. Í fyrsta lagi varðandi kostnaðinn. Gert er ráð fyrir því að Umhverfisstofnun fari með ráðgjafar- og eftirlitshlutverk í tengslum við loftslagsstefnu stofnana ríkisins og að hann nemi um 15 millj. kr. árlega sem hins vegar rúmist innan fjárheimilda málefnasviðsins. Þar er gert ráð fyrir að stofnunin geti aðstoðað aðrar stofnanir við gerð loftslagsstefnu svo það er gert ráð fyrir kostnaði við það.
Varðandi hýsingu loftslagssjóðs hefur ráðuneytið verið í samskiptum við Rannís vegna hennar. Við stefnum að því að vinna náið með Rannís, að Rannís hafi það hlutverk að auglýsa og aðstoða við úthlutun. Eftir sem áður er stjórn yfir sjóðnum sem er kveðið á um í frumvarpinu. Verið er að gera lítils háttar breytingar frá núverandi fyrirkomulagi, bæði eftir ákveðnar ábendingar, einmitt frá Rannís, m.a. hvað varðar Nýsköpunarmiðstöð. Þeim þótti óeðlilegt að Nýsköpunarmiðstöð ætti fulltrúa þar inni því að það gæti gert þeim ókleift að sækja um styrki. Við tókum þær athugasemdir til skoðunar og breyttum þessu.
Varðandi þekkingu held ég að það sé mjög æskilegt að allir hafi þekkingu á loftslagsmálum en við nefnum þetta sérstaklega þarna. Það er líka mikilvægt að þarna séu aðilar sem hafa þekkingu á nýsköpun og fræðslu sem er verið að beina sjónum meira að. Ég hef ekki áhyggjur af því að við séum að þrengja hlutverkið of mikið vegna þess að við erum komin með fjárheimildir til ýmissa annarra þeirra verkefna sem sjóðnum var áður ætlað með öðrum aðgerðum. Ég held meira að segja að það (Forseti hringir.) sé betra að það sé þrengra hlutverk en hann hefur í dag til að nýta fjármunina enn þá betur.