149. löggjafarþing — 87. fundur,  1. apr. 2019.

loftslagsmál.

758. mál
[17:47]
Horfa

Ari Trausti Guðmundsson (Vg):

Virðulegur forseti. Ég fagna þessu frumvarpi eins og aðrir hv. þingmenn hafa gert hér, það er ánægjulegt að það skuli vera komið fram. Ég verð þó aðeins hugsi yfir því sem hæstv. ráðherra ræddi um, þ.e. aðlögun að loftslagsbreytingum, og fleiri hv. þingmenn hafa komið hér að. Við vitum í hverju þessi aðlögun felst. Við þurfum að mæta ótal viðfangsefnum og sum þeirra verða okkur sennilega dýr.

Við ræðum hér um ágang sjávar og ekki bara ágang sjávar vegna landsigs og hækkunar sjávarborðs sums staðar heldur landriss annars staðar sem líka getur valdið verulegum vandræðum. Inni á landi, við getum talað um landvá, get ég nefnt skriðuföll vegna sífrerabráðnunar, ágang jöklavatns frá minnkandi jöklum, aukið rennsli áa o.s.frv. Við getum talað um plöntusjúkdóma, alla mannlegu og félagslegu þættina sem koma við sögu. Það segir mér að við þurfum mjög víðtæka samvinnu til að bregðast við þessu.

Hér hefur verið rætt um ráðuneyti sem verða væntanlega nokkur, flest þeirra koma að þessu. Við erum að tala um sveitarfélögin, alls konar stofnanir sem voru nefndar hér, Siglingastofnun, Umhverfisstofnun, Veðurstofuna og hvaðeina, líka Almannavarnir sjálfar. Fleira væri hægt að telja upp. Talað var um atvinnulíf. Mér dettur í hug framkvæmdaraðilar, verktakar og aðrir. Þetta er fyrir mér einhver stærsta þverfaglega áskorun sem ég get fundið á næstu árum og áratugum.

Þá vaknar spurningin um samhæfinguna og upplýsingasöfnunina um það sem er að gerast, eftirfylgnina með aðgerðum sem gripið er til, mat á hugsanlegum afleiðingum, breytingaspár. Verkefnin eru ansi mörg og þá er spurningin: Getur loftslagsráð haldið utan um þetta — það er í öðru líka, bindingunni, losuninni o.s.frv. — eða þurfum við að búa til enn eina stofnunina? Ég ætla ekki endilega að varpa því hér fram. Getur það verið skrifstofa, örfáir starfsmenn innan annarrar stofnunar eða er yfir höfuð þörf á slíku? Ég veit t.d. að Svíar eru með stóra og öfluga stofnun sem heitir Resilience Centre; resilience þýðir sem sagt andstaða eða mótstaða og er átt við loftslagsbreytingarnar.

Ég held að hæstv. umhverfisráðherra, ráðuneytið og sú verkefnisstjórn sem um ræðir, sem er verið að undirbúa hér, loftslagsráð og sjóðir og aðrir þurfi að fara að kafa ofan í þetta. Kannski væri snjallt að halda ráðstefnu, draga mjög marga að borðinu og skoða hvernig hægt er að mæta skipulagsþættinum, þ.e. utanumhaldinu og samþættingunni, stjórnuninni á viðbrögðum eða aðlögun að loftslagsbreytingunum. Þetta er sett fram til umhugsunar en ég sé þetta ekki alveg fyrir mér að svo komnu máli.