149. löggjafarþing — 87. fundur,  1. apr. 2019.

loftslagsmál.

758. mál
[17:51]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegur forseti. Loftslagsmál eru vissulega hin stóra áskorun okkar tíma. Sú aðgerðaáætlun sem liggur fyrir okkur, alla vega þau drög sem liggja fyrir, er dálítið tómleg, ef ég á að segja eins og er, að því leyti að í henni er ekkert fjallað um þau áhrif sem hver aðgerð kemur til með að hafa eða hvað hver aðgerð kostar. Ég er bæði í umhverfis- og samgöngunefnd og fjárlaganefnd og þá langar mig til að draga upp fjármálaáætlunina sem við fjöllum hér um líka. Þar er eitt af markmiðunum í umhverfismálum að unnið verði að öllum aðgerðum aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum.

Mér sýnist að staðan sé tekin í upphafi árs, staðan 2018 er sú að ekki er byrjað að vinna að neinum aðgerðum. Viðmiðin 2020 eru að það sé byrjað að vinna í 28 af aðgerðunum sem eru þar af 34 og svo að lokum árið 2024 verði byrjað að vinna í öllum aðgerðunum. Vandamálið er að í aðgerðaáætlun eins og hún lítur út núna vitum við ekki hvaða áhrif hver aðgerð hefur í þá átt að ná þeim markmiðum sem við höfum sett okkur með alþjóðaskuldbindingum. Það þýðir að við erum byrjuð að fjármagna aðgerðir sem við vitum ekkert hvað við græðum í rauninni mikið á eða hversu nálægt þær koma okkur að því takmarki sem við verðum a.m.k. að ná og framar þegar við komum að kolefnisjöfnuninni síðar.

Það er gert ráð fyrir því í greinargerðinni að aðgerðaáætlunin verði uppfærð ekki sjaldnar en á fjögurra ára fresti. Það er augljóst að aðgerðaáætlunin verður að vera uppfærð mjög fljótlega. Ég var að vonast til þess að önnur útgáfa færi að verða tilbúin og þess sæjust merki í fjármálaáætluninni svo við gætum skoðað hversu langt þessar aðgerðir munu skila okkur. Hversu langt er ætlast til að vistvænir bílar skili okkur í áttina að þeim markmiðum sem við erum búin að setja okkur samkvæmt alþjóðaskuldbindingum?

Í greinargerðinni er einnig talað um verkefni sem eru t.d. falin Veðurstofu Íslands. Í síðustu fjárlögum lögðu Píratar til fjármögnun á mælitækjum fyrir Veðurstofuna til að þau gætu náð hringinn í kringum landið. Það voru bara sjö eða átta baujur til að mæla breytingar á sjávarhæð, sjávarhita og seltu og ýmislegu svoleiðis. Ég velti fyrir mér hvort þetta sé komið inn, þetta eru ekki nema 50 milljónir, hvort gert sé ráð fyrir þessum mælitækjum ef Veðurstofan á að sjá um þessi verkefni og vera þessi milliliður við Sameinuðu þjóðirnar sem þarf að vera til að fylgja eftir þeim árangri sem við náum. Ég velti fyrir mér hvort Veðurstofan þurfi ekki að hafa mælitækin til að geta séð hvort við séum að ná þeim árangri sem við þurfum að ná eða ekki.

Almennt séð finnst mér mjög jákvætt að sjá allar svona breytingar. Ég hefði viljað sjá meira um aðgerðirnar og minna um undirbúning þeirra. Það ættu, að mínu mati, að vera til meiri upplýsingar um þau verkefni sem er verið að vinna núna, hvaða árangri við munum ná með þeim aðgerðum. Ég myndi vilja að ráðherra hjálpaði okkur að fá fullvissu fyrir því að það sé á leiðinni.

Því fyrr sem við sjáum árangurinn eða alla vega væntan árangur af þeim aðgerðum sem liggja fyrir, þeim mun betur líður fjárlaganefndarhlutanum í mér með það hvað við erum að gera hérna, að fjármagna þessar aðgerðir. Það skiptir tvímælalaust máli að fjármagna aðgerðir í réttri röð og það að ná sem mestum árangri sem fyrst skiptir höfuðmáli. Fyrst við setjum takmarkað fjármagn í þessar aðgerðir skiptir mjög miklu máli að ná sem mestum árangri sem fyrst.