Seðlabanki Íslands.
Herra forseti. Ég sat á nefndarfundi hér í þinginu þar sem þetta mál var kynnt. Ég er ekki að halda því fram að ég hafi fyllst miklum efasemdum en það leituðu á mig spurningar. Nú er verið að einfalda hlutina, í fljótu bragði virðist svo vera, það er verið að leggja niður stofnun og sameina. Hins vegar mun þessi nýja stofnun verða feiknarlega mikið bákn, það kom einnig fram.
Það var talað um að í upphafi myndu líklega a.m.k. 300 manns starfa þar. Eins og við vitum hafa stofnanir frekar tendens til þess að bólgna út en minnka með tímanum, auk þess sem efasemdir um sjálfstæðar eftirlitsstofnanir, að það sé endilega skynsamlegt að leggja þær niður, kviknuðu í huga mér. Menn hafa margir talið að það hafi verið mikil mistök á sínum tíma að leggja niður Þjóðhagsstofnun.
Nú er að hverfa eftirlitsbatterí, sum sé Fjármálaeftirlitið, og þarna verðum við komin með mjög stóra stofnun á fjármálasviðinu og spurningin er: Vakni spurningar um starfsemi þessarar stóru stofnunar, hvaða eftirlit á þá að fylgjast með því? Ef spurningar vakna um starfsemi Seðlabankans, eiga þá þessir starfsmenn, sem eru komnir í fjármálaeftirlit, sem er orðið deild í bankanum, að svara því? Mig langar til að vita frá hæstv. forsætisráðherra hvort svona efasemdir hafi aldrei hvarflað að henni sjálfri.