Seðlabanki Íslands.
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir yfirgripsmikla framsögu í þessu mikilvæga máli. Seðlabankinn er vissulega stofnun sem gegnir lykilhlutverki í íslensku þjóðfélagi. Það sætir auðvitað miklum tíðindum í hvert sinn sem lög um hann eru endurskoðuð í heild sinni, eins og hér er uppi, að ég ekki tali um þegar því fylgir stofnanatillaga af stærra taginu, leyfi ég mér að segja — þegar á að fara að sameina Seðlabankann og Fjármálaeftirlitið.
Ég ætla að leyfa mér að segja að stóra málið í þessu er að valdi fylgir ábyrgð. Það háttar þannig til með Seðlabankann að honum er falið afar mikilvægt og víðtækt, leyfi ég mér að segja, þjóðfélagslegt vald. Það eru ekki til hagstærðir sem fela í sér verð, í þeim skilningi, sem hafa afdrifaríkari og meiri áhrif en þær tvær hagstærðir sem bankinn kemur að, þ.e. annars vegar vextirnir og hins vegar gengið. Þannig er mjög afdrifaríkt, eða öllu heldur getur verið það, hvernig bankinn hagar sínum störfum og sinni stefnumótun.
Það var rætt í andsvörum áðan hvernig háttað væri eftirliti með bankanum. Ég vil taka undir með hæstv. ráðherra, það hvílir mikil ábyrgð á þeim þingflokkum sem fá það hlutskipti að tilnefna menn í bankaráð Seðlabankans. Þeir verða vissulega að vanda sig mjög vel.
Það er áleitið umhugsunarefni hvort ákvæði laganna um bankaráðið séu fullnægjandi í því tilliti að þau gefi bankaráðinu nægilegt svigrúm, ef ég má orða það þannig, til þess að hafa innan bankans virkt eftirlit með störfum bankans. Og að sama skapi vil ég leyfa mér að segja það, herra forseti, að ég tel að Alþingi ætti að hafa stærra hlutverki að gegna í þessu sambandi en núna. Ég skal ekki á nokkurn hátt gera lítið úr því eftirliti sem fer fram, til að mynda með því að fulltrúar bankans koma á fund hv. efnahags- og viðskiptanefndar. Slíkum fundum er gjarnan sjónvarpað beint. Það hefur vissulega umtalsverða kosti. En það er ekki fyrir að synja, herra forseti, að því geta einnig fylgt vissir gallar. Það getur þýtt að þegar menn eru í kastljósi sjónvarpsvéla séu þeir ekki í sams konar færi og við aðrar aðstæður, eins og venjulega eru á fundum, að það takist samtal. Og auðvitað geta komið upp þær aðstæður að það séu mikil efni til að kryfja mál mjög djúpt og fara ofan í ákvarðanir bankans og hvernig hann hefur staðið að málum með öðrum hætti en gerist í beinni útsendingu þar sem til að mynda fulltrúar sex eða eftir atvikum átta þingflokka hafa kannski bara örfáar mínútur í einni eða tveimur umferðum. Að sama skapi er náttúrlega ræðutími fulltrúa bankans takmarkaður.
Menn sjá þannig að hægt er að gera betur í þessum efnum — og kannski verður að gera betur, ekki síst í ljósi þess sem ég sagði áðan og leyfi mér að endurtaka, herra forseti, að hið þjóðfélagslega vald sem bankanum er falið er af því tagi, svo víðtækt og svo mikið og svo afdrifaríkt, að það er alveg nauðsynlegt að því fylgi ábyrgð og að raunhæft og virkt eftirlit sé með störfum bankans.
Ég hef að svo komnu máli kannski ekki sterka sannfæringu fyrir sameiningu þessara tveggja stofnana sem hér er lögð til. Þannig háttar til að við sáum nú svolítið til þessara stofnana í hruninu. Við sáum til að mynda hvernig öflugar fjármálastofnanir gátu gengið fram með þeim hætti að þeim tókst í vissum skilningi að hafa ákveðin áhrif á Fjármálaeftirlitið, í þeim skilningi að í mörgum tilvikum urðu starfsmenn þar ekki ellidauðir í starfi heldur höfðu bankarnir tök á því að kaupa út þessa starfsmenn. Og þegar þannig háttar til að starfsmannavelta er mikil verður stofnun auðvitað erfitt um vik. Og svo mætti áfram telja.
Reyndar hefur stöku sinnum hvarflað að manni hvort þessa starfsemi Fjármálaeftirlitsins mætti ekki bara bjóða út á Evrópska efnahagssvæðinu. Þetta er bara ákveðin þjónusta. Bankarnir eru vanir því að þeir séu teknir út af erlendum fyrirtækjum. Þeir fá heimsóknir frá matsfyrirtækjunum, Moody's og Standard & Poor's og hvað þau nú öll heita. Ég ætla nú ekki að varpa þessu fram sem beinni tillögu en mér finnst að þetta megi vera til umhugsunar um þann vanda sem við raunverulega stöndum í — hér var nefnt að við erum ekki nema lítil þjóð og allt það — við að halda uppi eftirliti með bönkum, sem er nánast eins og stóriðjurekstur meðal stærri þjóða. Vandinn er engu minni meðal lítilla þjóða eins og okkar.
Síðan verð ég að leyfa mér að segja að mér finnst svolítið erfitt að fjalla um sameiningu þessara tveggja stofnana þannig að úr verði þessi risastofnun sem mun hafa mjög víðtæka stjórnsýslulega ábyrgð í samskiptum sínum við fjármálastofnanir. Það er einu sinni þannig að við höfum nýlega fengið tækifæri til að sjá koma fram ákveðnar brotalamir í stjórnsýslu Seðlabankans í ákveðnum málaflokki, gjaldeyriseftirlitinu, með mjög alvarlegum afleiðingum.
Reyndar hefði verið óskandi að lagaþekking hjá æðstu yfirstjórn bankans væri yfirgripsmeiri en a.m.k. viðtöl við suma þeirra og opinberar yfirlýsingar virðast gefa tilefni til að ætla.
Þessari nýju stofnun, sameinuðum Seðlabanka og Fjármálaeftirliti, er með þessum hætti falið mjög mikið vald. Slíkt vald er auðvitað mjög vandmeðfarið. Það er illt til þess að hugsa að slíkt vald lendi hjá aðilum án þess að þeir fái fullnægjandi og raunhæft eftirlit með sínum störfum. Ég legg á þetta höfuðáherslu.
Hæstv. ráðherra vék undir lok sinnar ræðu að kröfum til þeirra sem ráðnir eru til stofnunar af þessu tagi. Þar er mjög stórt mál á ferðinni. Það þarf að gera mjög víðtækar og miklar kröfur til þeirra sem veljast til æðstu forystu og í lykilstörf í stofnunum eins og Seðlabankanum og Fjármálaeftirlitinu. Það verður að hafa raunhæfa merkingu í auglýsingu þegar kallað er eftir að umsækjandi hafi yfirgripsmikla þekkingu á þeim málaflokki sem um er að ræða. Það dugir ekki að það sé hægt í skjóli einhverrar hæfnisnefndar að setja saman einhvern ofurgylltan texta sem jafnvel, ef vel tekst til, nær að breiða yfir að sá sem hreppir stöðuna, þrátt fyrir að hafa mjög marga kosti og margt til að bera, hafi kannski ekki nákvæmlega yfirgripsmikla þekkingu á þeim málaflokki sem um er að ræða.
Ég vil líka leyfa mér að nefna að það er ástæða til að hafa eftirlit og gagnrýna afstöðu til Seðlabankans eins og allra annarra stofnana. Það er auðvitað alveg sjálfsagt mál. Ógagnrýnin afstaða bankans til lykilþátta í íslensku fjármálakerfi hefur vakið athygli mína og reyndar furðu um langt skeið. Við erum hérna með alveg sérstakt kerfi í okkar fjármálum, sem þekkist hvergi í okkar heimshluta, þessa heimatilbúnu verðtryggingu sem var búin til upp úr neyð í lok áttunda áratugar síðustu aldar.
Og að Seðlabankinn með öll sín alþjóðlegu tengsl og sambönd við aðra banka, alla þessa fundi með bankastjórum í Basel og linnulausu samstarfi og samráði, skuli ekki hafa fundið hjá sér minnstu hvöt til þess að vera þátttakandi í því að móta stefnu þar sem við yrðum dregin upp úr þessum hjólförum sem þessi verðtrygging er? Við spólum bara ár eftir ár og áratug eftir áratug í kerfi sem er svo gjörólíkt því sem gerist og gengur að það hefur ekki tekist að útskýra þetta fyrir nokkrum manni sem hingað kemur, hvort sem hann er sérfræðingur eða blaðamaður — og þegar maður er kominn hálfa leið við að útskýra þetta er bara sagt við mann eins og þýski blaðamaðurinn sagði við mig: Ef þetta væri svona heima hjá mér væri búið að reisa götuvígi.
Þannig að ég verð að leyfa mér að segja að fyrst hér gefst tækifæri til að fjalla svona almennt, laust og bundið, í 1. umr. um þetta frumvarp um Seðlabankann, að það er auðvitað ekki nógu gott að svona stofnun gangi fram eins og hún sé eins konar stjórnmálaafl í stað þess að vera hlutlæg og hlutlaus stofnun sem fjallar um einstök mál og málaflokka af hlutlægri og gagnrýninni hugsun.
En ég skal ekki orðlengja þetta að svo komnu máli. Ég vil bara undirstrika og árétta það sem hefur kannski verið kjarninn í því sem ég hef leyft mér að segja hérna, að valdi fylgir ábyrgð. Eftirlitshlutverkið með bankanum verður að vera öflugt að vöxtum og rammgert að öll leyti.