Seðlabanki Íslands.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra góða yfirferð yfir þetta mál. Ég ætla í sjálfu sér ekki að hafa langt mál um frumvarpið á þessu stigi en fagna því að það sé fram komið. Ég held að það sé löngu tímabært að grípa til þessarar sameiningar. Ég held að í jafn litlu samfélagi með jafn lítið fjármálakerfi og við erum með í alþjóðlegu samhengi sé mjög mikilvægt að við háttum því eftirliti sem hefur verið á hendi bæði Seðlabanka og Fjármálaeftirlits með samræmdari hætti en verið hefur. Bæði felast í því að mínu viti möguleikar til talsverðs hagræðis en um leið, sem skiptir meira máli, öryggis og festu í því eftirliti sem þar ber að sinna og skapar auðvitað líka einfaldara starfsumhverfi fyrir fjármálafyrirtæki á markaði sem skiptir verulega miklu máli.
Það er mikilvægt í þessu samhengi að átta sig á því að sameinað fjármálaeftirlit og seðlabanki með þessum hætti er gríðarlega valdamikil stofnun með mjög mikla ábyrgð á hendi varðandi skipan efnahagsmála til skemmri og lengri tíma. Þess vegna er ákaflega mikilvægt að vel takist til við þessa sameiningu, ráðningar í nýja stofnun o.s.frv. En það leiðir auðvitað dálítið hugann að því sem mætti kalla eftirlit með eftirlitinu, þ.e. hvernig við háttum skipan bankaráðs Seðlabankans sem mun hafa það eftirlit með höndum, ásamt forsætisráðuneytinu og þinginu sjálfu eftir atvikum.
Það vekur athygli þegar maður les frumvarpið að það eru eiginlega engar sérstakar hæfiskröfur gerðar til bankaráðsmanna í bankaráði Seðlabanka aðrar en þær hvaða störfum viðkomandi mega ekki gegna á þeim tíma sem þeir eru skipaðir í bankaráðið. Ég held að við þurfum að taka það til skoðunar í þinglegri meðferð málsins. Ég held að það sé mjög eðlilegt að gera þá kröfu að bankaráðið sé einmitt ekki, eins og gjarnan hefur verið tilfellið hingað til, pólitískt skipað án tillits til hæfis viðkomandi einstaklings til þess að gegna því mikilvæga eftirliti sem þar verður sinnt. Og í því samhengi held ég að sé fullt tilefni fyrir þingið og viðkomandi þingnefnd að skoða mjög vandlega hlutverk bankaráðsins, hvort það sé nægilega vel skilgreint eða jafnvel um of afmarkað að einhverju marki í frumvarpinu eins og það stendur hér. Ég held að það skipti gríðarlega miklu máli fyrir jafn valdamikla stofnun að það sé vandað mjög til skipanar bankaráðsins og hlutverk þess og ábyrgð ekki síður vel skilgreint en ábyrgð og skyldur lykilstarfsmanna bankans eftir þessa sameiningu.
Auðvitað væri hægt að ræða í nokkuð löngu máli um umgjörð fjármálakerfisins og umgjörð peningastefnunnar sem er kannski lítið tekið á í þessu. Við erum í raun og veru að afgreiða, í nokkuð stuttu máli finnst mér, þá ákvörðun að sigla bara áfram með óbreytta peningastefnu á grundvelli þessara laga. Það þykir mér miður, ég dreg ekki dul á það. Ég tel marga meinbugi á þeirri peningastefnu sem við höfum fylgt á undanförnum árum með ýmsum stefum þó, getum við sagt, en það hefur ekki tekist að skapa þann stöðugleika sem til þarf. En ég ætla ekki að eyða löngu máli í það. Við tókum umræðu um það í þinginu í vetur og er ekkert launungarmál að sú ríkisstjórn sem starfar í landinu í dag hefur engan áhuga á því að taka á því vandamáli og það bíður síðari tíma, þó svo að við sjáum mjög kunnugleg hættumerki og vandamál tengd þessari peningastefnu rísa fyrir framan okkur um þessar mundir.
Það sem er hins vegar vert að leiða hugann að í samhengi við þetta mál er umgjörð fjármálakerfisins sjálfs. Ég myndi segja að fjármálakerfið búi orðið við talsvert viðamiklar kröfur. Það er auðvitað svo að í öllum þeim ráðstöfunum og aðgerðum sem gripið hefur verið til eftir hrun er stöðugt verið að reyna að byrgja þann brunn sem síðast var dottið í, en fyrir vikið höfum við búið svo um hnútana að við erum með allt of dýrt og ósamkeppnishæft bankakerfi sem nær ekki að sinna í raun grunnkröfum sem gera má til fjármálakerfisins, t.d. um að geta veitt lán á samkeppnishæfum kjörum. Við sjáum það bara í hvítbók ríkisstjórnarinnar um fjármálakerfið að kerfið er orðið allt of dýrt, að stórum hluta út af bæði sértækri skattlagningu og sértækum kröfum sem við gerum til fjármálastofnana umfram nágrannalönd okkar. Það held ég að við hljótum í nefndinni líka að þurfa að horfa aðeins í þegar við förum í gegnum þetta mál heildstætt.
Að því sögðu segi ég enn og aftur: Ég fagna því að málið sé fram komið. Efnahags- og viðskiptanefnd hefur fengið ákveðna forkynningu á þessu máli með þeim skilaboðum að það þurfi að afgreiðast hratt og vel, en ég held að það þurfi að vanda líka til verks og tryggja að við séum með trausta umgjörð, ekki hvað síst hvað varðar það hvernig við tryggjum hlutverk bankaráðs og eftirlit með þessari gríðarlega valdamiklu stofnun sem við erum að setja hér á fót.