Seðlabanki Íslands.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni ágæta ræðu, í sjálfu sér er ekki margt við hana að athuga. En þó langar mig að eiga orðastað við hv. þingmann vegna orða er varða óbreytta peningastefnu og svo vísaði hv. þingmaður í umræðu sem við höfum átt hér fyrr í vetur í þinginu, þar sem við vorum að ræða skýrslu um leiðir í peningastefnu. Hv. þingmaður lýsti því, ef ég skildi hann rétt, að sér þætti miður að ekki ætti að gera neinar breytingar þegar kæmi að peningastefnu.
Nú læðist að mér sá grunur að hér sé hv. þingmaður að vísa til hugmynda sinna um að við tökum upp aðra mynt en íslenska krónu. Mér þótti það einmitt dálítið einkenni á sumum sem tóku þátt í umræðunni um ýmsar tillögur um peningastefnu hér fyrr í vetur að við vorum lítið að ræða þá skýrslu, eða alla vega sumir sem tóku þátt í henni, heldur einmitt að ræða þá ósk, sem ekki var þá til umfjöllunar, að hér yrði einhvern veginn tekin upp önnur mynt.
Hér er beinlínis sagt að Seðlabanka sé ekki eingöngu heimilt með samþykki ráðherra að lýsa yfir tölulegum markmiðum um verðbólgu, heldur segir líka, með leyfi forseta:
„Seðlabankanum er heimilt með samþykki ráðherra að lýsa yfir markmiði um gengi íslensku krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum.“
Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann sjái ekki í því frumvarpi sem hér er vísi að breyttum áherslum í peningastefnu þó að það séu ekki endilega þær áherslur sem hv. þingmaður telur vera einu breytingarnar hvað peningastefnu varðar.