Seðlabanki Íslands.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Það kemur ekkert á óvart að ég vilji ræða peningastefnu og breytingar á henni. Ég er í flokki sem er hlynntur því að taka upp gjaldmiðil sem einhverjir utan okkar ástkæru eyju myndu vilja snerta á og væri alþjóðlega gjaldgengur. Í umræðunni hér í vetur um breytta skipan í peningastefnu var það lykilatriði skilið eftir utan dagskrár. En það breytir því ekki að ég hef ekki nokkra trú á því að íslenska krónan verði okkur brúkhæfur gjaldmiðill til lengri tíma litið. Ég tel að á 100 ára fullveldi höfum við tæmt allar þær varíasjónir sem þar er mögulegt að nota og sumar oftar en einu sinni, jafnvel oftar en tvisvar.
En varðandi spurninguna um hvort ekki væri verið að breyta peningastefnunni með þessu — ef hv. þingmaður vill vera í salnum til að hlusta á svarið — þá er það einmitt ekki svo. Ég spurði út í þetta þegar efnahags- og viðskiptanefnd fékk forkynningu á málinu og fékk það svar að þessi heimild er til staðar í núgildandi lögum um Seðlabankann. Ég hélt einmitt fyrst, þegar ég hnaut um þessa setningu, að mögulega væri verið að breyta eða útvíkka þau tæki sem Seðlabankinn hefði í peningastefnu en var tjáð að svo væri ekki, það væri eingöngu verið að færa til heimildarákvæði sem er þegar í lögunum og gæta þess að þau væru þá bara í einni og sömu greininni, þ.e. varðandi markmið um stöðugt verðlag eða tölulegt markmið um verðbólgu og aftur eitthvert tölulegt markmið eða viðmið um gengi. Þetta er því engin breyting frá núgildandi lögum. Það er eingöngu verið að færa til, eftir því sem mér skilst, þetta heimildarákvæði.