Seðlabanki Íslands.
Herra forseti. Ég vil í upphafi máls míns þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir framsöguna og að leggja fram þetta ágæta mál. Ég held að það sé afar mikilvægt, einkum og sér í lagi, eins og kom fram í máli hæstv. forsætisráðherra, í kjölfar skýrslu peningastefnunefndar og þeirra ábendinga sem þar komu fram. Á þeim er mörgum tekið í frumvarpinu.
Það er kannski fyrst og fremst eitt atriði sem ég vil sérstaklega hnykkja á í sambandi við umræðuna og væntanleg störf í hv. efnahags- og viðskiptanefnd. Núna þegar við sameinum þessar tvær stofnanir og flytjum í rauninni fjármálaeftirlitið inn í Seðlabankann þurfa, eðli málsins samkvæmt, að vera býsna traustir eldveggir á milli fjármálaeftirlitsstarfseminnar þar inni og hinnar hefðbundnu seðlabankastarfsemi sem þar hefur verið fram undir þetta. Það skiptir miklu máli til þess að viðhalda trúverðugleika þessarar gríðarlega mikilvægu stofnunar. Ég tel að sameiningin sé afar skynsamleg, að búa til eina sterka stofnun í því litla hagkerfi okkar sem sér um þessi mál. En hitt má ekki vera neinum vafa undirorpið, að milli þessara tveggja lykilþátta í málinu séu ekki greiðar samgöngur, skulum við segja.
Eins og hefur komið fram í máli nokkurra hv. þingmanna er mikilvægt að vanda sig í þessu máli og ég tek heils hugar undir að í það fari góð og mikil vinna í efnahags- og viðskiptanefnd. Nefndin hefur ágætistíma, alveg til vors, til að klára þetta mál og leita þeirra álita sem til þarf. Ég treysti hv. nefnd ágætlega til þess.
Eins og hefur líka komið fram fylgir málinu stórt lagafrumvarp sem helst má kalla bandorm eftir því sem mér skilst, en er engu að síður bandormur upp á býsna marga liði og það þarf að fylgja með. Þar eru gerðar breytingar á 30 lagabálkum. Ég hlakka til að takast á við þetta mál í hv. nefnd og vildi koma á framfæri þessum sjónarmiðum.