149. löggjafarþing — 87. fundur,  1. apr. 2019.

Seðlabanki Íslands.

790. mál
[20:39]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Hæstv. forseti. Ég myndi ekki kjósa neitt frekar, held ég, en að geta verið sammála síðasta ræðumanni, hv. þm. Óla Birni Kárasyni, um flestallt sem hann sagði. Það var að vísu notalegt að heyra hann auglýsa eftir einhverjum úr stjórnarandstöðunni og auðvitað varð maður við því að koma hingað upp. [Hlátur í þingsal.] Ég get alveg tekið undir það með honum að víst hefur þessi undirbúningsvinna örugglega verið mjög góð. Það vildi þannig til að ég sat sem varaskeifa annan af þessum kynningarfundum sem haldinn var í efnahags- og viðskiptanefnd út af þessu máli. En vegna þess hve langur ferillinn er búinn að vera og hversu margir eru búnir að koma að verki verð ég að viðurkenna að niðurstaðan veldur mér verulegum vonbrigðum.

Það er ekki síst að það sem markar það sem ég er að tala um núna eru nýliðnir atburðir og nýliðinn opinn fundur í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þar sem núverandi seðlabankastjóri og bankaráðsformaður sátu m.a. fyrir svörum. Ég verð eiginlega að viðurkenna að meðal þess sem olli mér áhyggjum á þeim fundi var að bankaráðsformaðurinn og seðlabankastjórinn töluðu algjörlega hvor með sínum hætti um það mál sem þar var til meðferðar.

Það er alveg hárrétt sem hv. þm. Óli Björn Kárason sagði áðan: Það skiptir miklu máli hver skipar embætti seðlabankastjóra, sem er gríðarlega valdamikið. Í sjálfu sér hefur seðlabankastjóri engan yfirmann nema hæstv. forsætisráðherra. Ég er ekki að segja að það sé slæmt. En bankaráð er þarna eingöngu ráðgefandi og til eftirlits og seðlabankastjóri — hver sem hann er, svo menn haldi ekki að ég sé að leggja í einelti þann sem situr núna — leikur í sjálfu sér bara lausum hala í tíu ár, eða fimm, tvisvar fimm. Þetta veldur mér nokkrum áhyggjum.

Það veldur mér líka áhyggjum að þarna verða með honum þrír aðstoðarbankastjórar og einn er þá sá sem á að sinna eftirliti með Seðlabankanum sjálfum. Hann er undirmaður seðlabankastjóra.

Ég sé þetta ekki fúnkera, bara því miður.

Á þessum fundi sem ég sat um daginn í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd kom einmitt þetta atriði mjög til umræðu. Menn virtust hafa sveiflast mjög í því hvort Fjármálaeftirlitið, að hluta eða öllu leyti, ætti heima inni í Seðlabankanum. Ég skal fúslega viðurkenna að fyrir nokkrum misserum síðan var ég á því sjálfur að Fjármálaeftirlitið ætti að vera inni í Seðlabankanum — til þess að efla það o.s.frv. En núna, ekki síst í ljósi ýmissa atburða sem gerst hafa, get ég ekki alveg séð hvernig Fjármálaeftirlitið á t.d. að hafa eftirlit með því sem gerist í Seðlabankanum sjálfum.

Síðan er annað hér sem ég tek eftir. Nú á að búa til 300 manna stofnun. Ég veit ekki hvort starfsmenn Seðlabanka Bandaríkjanna eru 300.000. Ég er ekki viss um það. En það er svona stærðarhlutfallið þar á milli. Þetta verður alveg risastór stofnun, 300 manna stofnun, með stærstu ríkisstofnunum, fyrir utan spítala og slíkt. Þarna á að búa til alveg fullt af stjórnum og ráðum. Þarna verður sjö manna bankaráð og sjö manna peningastefnunefnd og yfir öllu þessu á að vera aðstoðarbankastjóri eða varaseðlabankastjóri.

Ég verð að viðurkenna að í fljótu bragði sé ég ekki alveg hvernig allt þetta apparat, þessi stóra vél, á að geta starfað „smurt“, eins og maður segir.

Síðan eru náttúrlega mestu vonbrigðin af öllum vonbrigðum. Þetta frumvarp hér boðar óbreytta peningastefnu — sem hefur ekki virkað síðan 1995. Það á að framlengja hana enn. Við erum að taka lög um Seðlabanka Íslands upp í heilu lagi og við gerum ekki neinar breytingar á peningastefnu. Þetta eru gríðarleg vonbrigði. Þetta er nokkuð sem hv. efnahags- og viðskiptanefnd hlýtur að athuga. Hún hlýtur að athuga líka þau varnaðarorð sem ekki bara ég heldur fleiri hafa sett fram um að Fjármálaeftirlitið í heild sinni fari inn í Seðlabankann. Ég vona það satt að segja og ég treysti því að hv. nefnd taki þetta mál til gaumgæfilegrar skoðunar. Það var talað um það áðan að hún hefði góðan tíma til verksins. Ég er ekki sammála því. Það er hálfur mánuður, þessi mánuður núna sirka í störfum þingsins, og síðan maímánuður. Menn eiga eftir að kalla eftir umsögnum og kalla á gesti o.s.frv. Mér finnst þetta ekki mikill tími til þessa verks. Bara afsakið, ég sé það ekki.

Kannski er mönnum nauðugur einn kostur, það þarf að skipta um seðlabankastjóra í ágúst eða fyrr, en mér finnst þessi tími ekki nægur. Þetta frumvarp kemur hérna inn korter í þrjú, eins og maður segir, rétt áður en framlagningarfrestur rennur út, rétt þannig að ekki þurfi að taka það inn með afbrigðum. Ég hefði sjálfur kosið að þetta frumvarp hefði verið komið inn í síðasta lagi fljótlega eftir áramót. Mönnum hefði þannig gefist góður tími í nefndinni til að fara yfir það. Og einmitt út af þessum stutta tíma viðurkennir sá sem hér stendur að hann er ekki búinn að lúslesa þetta frumvarp heldur eru það bara stóru atriðin sem ég taldi upp núna og vildi koma á framfæri vegna þess að ég tel þau grafalvarleg.

Svo ég vitni aftur í minn ágæta kollega, síðasta ræðumann, hv. þm. Óla Björn Kárason, sagði hann: Það skiptir rosalega miklu máli hvernig mann við veljum sem seðlabankastjóra. Það er alveg hárrétt en í þessum orðum kristallast hvað þetta starf er, samkvæmt þessu frumvarpi, gríðarlega valdamikið. Í sjálfu sér hefði vonandi verið hægt að segja að bankaráðshlutverkinu væri breytt þannig að þar væri einhver stjórn sem seðlabankastjóri svaraði til vegna þess að í nýliðnum atburðum verður að viðurkennast að hæstv. forsætisráðherra og bankaráð Seðlabankans hafa hent á milli sín þeim málum eins og heitri kartöflu. Hvorugt er búið að stöðva og halda á henni til lengdar.

Þá segir maður: Eigum við, við óbreytt ástand, von á að þetta haldi bara áfram? Ef eitthvað gerist — auðvitað viljum við ekki að það gerist — hvernig á bankaráðið eða undirmaður væntanlegs seðlabankastjóra, sem er aðstoðarbankastjóri með Fjármálaeftirlitið á sinni könnu, að geta veifað einhverjum flöggum svo mark sé takandi á? Ég sé ekki betur en að þá séum við með sömu „sitúasjón“. Við erum með sömu uppbyggingu. Ég segi aftur að þetta veldur mér verulegum vonbrigðum og verulegum áhyggjum.

Þó að það sé leiðinlegt að vera neikvæður verður maður stundum að vera það, sérstaklega vegna þess að eins og ég segi er örugglega búið að leggja mikla vinnu í þetta plagg og allan undirbúning.

Ég spyr bara: Hvað voru menn að gera allan þennan tíma ef það átti að taka upp þessi mál í heilu lagi miðað við þá gagnrýni sem t.d. hefur komið fram á peningastefnuna? Ekki bara hefur komið fram gagnrýni á peningastefnuna, bæði hjá virtum hagfræðingum og sumum alþingismönnum, heldur hafa menn bent á nauðsyn þess að breikka og auka þær heimildir, þau úrræði, sem bankinn gæti haft til þess að hér séu efnahagsmál í betri horfum en þau hafa verið.

Ég held því enn fram, svo ég nefni bara eina ákvörðun, að þegar ég sagði úr þessum stól árið 2015 að það ætti að lækka stýrivexti um 2% þar og þá er ég alveg sannfærður um að sagan frá þeim tíma til dags dato hefur sagt okkur að það hefði verið rétt ákvörðun.

Þetta var við síðustu stóru kjarasamninga. En Seðlabankinn fór á taugum, hækkaði stýrivexti í tvígang og er núna, fjórum árum síðar, búinn að koma stýrivöxtunum niður í sömu prósentutölu og hún var fyrir síðustu kjarasamninga 2015 og lemur sér á brjóst. Ég held að flestallir séu sammála um að vaxtastig hér sé undirrót mjög margs ills. Það er ekki að ófyrirsynju sem kröftugasti hluti verkalýðshreyfingarinnar hefur gengið til samninga núna og kallað á ríkisstjórnina að breyta hér vaxtakjörum, að taka af verðtryggingu, alla vega að hluta. Það sjá allir að ef vaxtastig hér yrði lækkað verulega myndi það gera fyrirtækjum kleift að borga hærri laun vegna þess að það er verið að drepa fyrirtæki jafnt sem almenning með vaxtaokri. Og ég held að það hafi meira að segja komið fram, kannski ekki beint en óbeint, að með því að vextir lækkuðu hér væri hægt að gera hógværari kröfur af hálfu verkalýðshreyfingarinnar. Almenningur er jafn þrautpíndur og allir aðrir út af því vaxtaokri sem hér viðgengst.

Ef við ætlum að finna sambærilegar slóðir held ég að það sé bara við höfnina í New York þar sem menn eru með kúluhamra í vasanum og lána mönnum undir borðið. En í siðuðu þjóðfélagi er ekki hægt að finna þetta vaxtastig. Hvergi sem ég veit um, alla vega ekki nálægt okkur.

Það eru þessi atriði sem ég set mikinn fyrirvara við út af þessu frumvarpi og valda mér ofboðslegum vonbrigðum. Ég vona sannarlega að hv. efnahags- og viðskiptanefnd nýti vel tímann sem hún fær. Ég vona sannarlega líka, því að ég efast ekki um að það eigi eftir að koma gestir og koma umsagnir sem verða með líkum hætti og það sem ég er búinn að segja hérna, að nefndin hlusti á slíkt og taki tillit til þess. Samþykkt þessa frumvarps skiptir náttúrlega miklu máli inn í langa framtíð og ég sé bara ekki alveg í fljótu bragði að við þolum óbreytta peningastefnu fimm til tvisvar sinnum fimm ár fram í tímann. Ég er ekki alveg farinn að sjá það.

Ég bara vonast til þess að nefndin taki þetta mál mjög föstum tökum og fari mjög vel yfir það og að við fáum betra frumvarp hingað inn eftir að nefndin hefur farið höndum um það.