149. löggjafarþing — 87. fundur,  1. apr. 2019.

Seðlabanki Íslands.

790. mál
[20:53]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna sem hann flutti hérna. Það er ánægjulegt að heyra að hv. þingmanni finnist leiðinlegt að vera neikvæður. Ég er jafnvel að hugsa um að hjálpa honum til þess að hafa meira gaman, hjálpa honum að vera örlítið jákvæðari í garð þessa frumvarps.

Ég kom hingað upp þar sem hv. þingmaður talaði um fund í hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Þar hefði ýmislegt komið fram sem ég gat ekki skilið betur en að hefði jafnvel fengið hv. þingmann til að breyta um skoðun eða í það minnsta hugsa öðruvísi um þessa hluti.

Ég sat þennan fund líka og ég gat ekki skilið gesti á þeim fundi öðruvísi, þegar kom að þessu frumvarpi, en að það væru miklar vangaveltur og varað við að þetta yrði gert svona eða hinsegin og að það þyrfti eðlilega að huga að þessu og hinu við þessa sameiningu. .Stór og mikil er hún. Engu að síður sæju menn mikla kosti við þetta líka og væru mjög jákvæðir í garð ýmislegs sem þetta myndi hafa í för með sér, jafnvel svo að þeir teldu betur af stað farið en heima setið. Að því uppfylltu að gætt yrði mikillar varúðar og eldveggir reistir á milli einstakra deilda myndu kostirnir vega þyngra en gallarnir.

Er hv. þingmaður ósammála mér um þessa túlkun — sem er öllu jákvæðari en hans neikvæða túlkun? Þar sem honum finnst neikvæðni leiðinleg er nú færi á að hafa smávegis gaman.