Seðlabanki Íslands.
Forseti. Ég ætla mér ekki að vera slíkt kraftaskáld að geta snúið neikvæðni hv. þingmanns í jákvæðni í tveggja mínútna andsvari, (ÞorS: Þú ert nú öflugur.)enda var ég ekki endilega að velta fyrir mér jákvæðni hv. þingmanns, þótt mikilvæg sé, heldur þeirri jákvæðni sem þó mátti heyra á gestum á fundi hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar sem hv. þingmaður kom inn á.
Ég gat ekki skilið hann öðruvísi hér í sinni ræðu, eins og hann svo sem staðfesti í andsvari, en að þar hefði jafnvel orðið viðsnúningur á hans afstöðu og honum hefði brugðið í brún. Svo vill nú til að fundi sem eru opnir er einfaldlega hægt að horfa á. Við þurfum ekkert að velta mikið fyrir okkur hvort jákvæðni hafi þar verið að finna eða ekki. Aukinheldur munu væntanlega koma umsagnir um frumvarpið í meðförum hv. nefndar.
Ég vildi engu að síður draga það hér fram því að mér fannst lýsing hv. þingmanns á þeim sjónarmiðum sem þar komu fram vera fullneikvæð. Ég spurði sérstaklega út í afstöðu til frumvarpsins á umræddum fundi heilt yfir, ef að öllu yrði gætt, öllum þeim varnaðarorðum sem þar voru sett fram, hvort þetta væri heillaskref eða ekki. Ég gat ekki skilið svörin öðruvísi en að það væri, í það minnsta hjá gestunum, vilji til að stíga þetta skref ef — aftur — allrar varúðar gætt, eldveggir, reistir o.s.frv.