149. löggjafarþing — 87. fundur,  1. apr. 2019.

Seðlabanki Íslands.

790. mál
[21:01]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég ætla ekki að lengja umræðuna mikið en vil fá að þakka þeim hv. þingmönnum sem hér hafa talað. Það má rekja rauðan þráð í gegnum orð þeirra allra, þ.e. hv. þingmenn lýsa áhyggjum af því að þetta megi ekki leiða til of mikillar samþjöppunar valds. Ég er sammála því sjónarmiði. Þess vegna leggjum við til mjög skýra verkaskiptingu milli þessara þriggja ólíku sviða bankans. Við leggjum líka aukna áherslu á gagnsæi í starfsemi Seðlabankans. Það hefur verið sagt um hefðina í starfsemi seðlabanka að seðlabankar séu þeim mun betri því færri sem skilji þá. Það eru rök fortíðarinnar. Seðlabankar eiga einmitt að starfa með gagnsæjum hætti. Seðlabankar eiga að eiga samtal við almenning um peningastefnuna, um fjármálastöðugleika, um sitt lögboðna hlutverk. Og hluti af því sem við leggjum til eru þessi breyttu vinnubrögð sem ég held að vinni einmitt gegn því sem hv. þingmenn hafa áhyggjur af, sem er of mikil samþjöppun valds.

Að því sögðu get ég tekið undir það sem hér hefur verið sagt. Mér finnst t.d. að hv. efnahags- og viðskiptanefnd, sem átt hefur opna fundi með peningastefnunefnd, eigi líka að eiga opna fundi með fjármálastöðugleikanefnd og að nefndin geti líka átt lokaða fundi ef það hentar betur til að ræða einstök málefni. Þetta er auðvitað eitt mikilvægasta verkefni hv. efnahags- og viðskiptanefndar hér á þinginu.

Nokkrir hv. þingmenn hafa rætt sérstaklega um skipan bankaráðs. Við setjum ekki neinar sérstakar hæfniskröfur á þá sem Alþingi velur til starfa í bankaráði heldur leggjum það traust á þingið að það standi undir því að kjósa gott bankaráð sem uppfyllir hlutverkið sem því er ætlað, sem er að hafa eftirlit með starfsemi bankans. Ég er sjálf ekki endilega þeirrar sannfæringar að það væri best að hafa t.d. sjö hagfræðinga í bankaráði. Það kann að vera mjög gott að hafa hagfræðinga og það kann að vera mjög gott að hafa lögfræðinga. Í núverandi bankaráði situr kerfisfræðingur og það er kannski ekki slæm hugmynd þegar við sjáum allar þær tæknibreytingar sem eru að verða í fjármálaheiminum, í greiðslumiðlun og öðru slíku. En hafandi sagt þetta, að við getum ekki endilega ákvarðað það í lögum hvaða menntun sé mikilvægast að hafa til þess að sitja í bankaráði, er ábyrgð Alþingis auðvitað mikil í því að kjósa bankaráð sem uppfyllir það hlutverk að hafa eftirlit með því að Seðlabankinn starfi að lögum.

Ég hlýt að segja það í ljósi orða hv. þm. Þorsteins Sæmundssonar — og ég fagna nú því stefnumóti sem hann og hv. þm. Kolbeinn Óttarsson Proppé hafa ákveðið hér í kvöld — en hann gerði að umtalsefni það mál sem var til umræðu á opnum fundi hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, að vegna þess máls óskaði ég eftir greinargerð frá bankaráði. Ég hef fengið þá greinargerð. Í kjölfarið hef ég óskað eftir nánari upplýsingum frá Seðlabankanum þannig að sú heita kartafla er ekki á ferðinni milli mín og bankaráðsins. Bankaráðið hefur lokið sinni vinnu og skilað sinni greinargerð. Í henni kom margt fram eins og ég er viss um að við hv. þingmaður erum sammála um og í kjölfarið hef ég óskað eftir frekari upplýsingum frá Seðlabankanum um einstök atriði þeirrar greinargerðar og hvernig bankinn ætlar nákvæmlega að fylgja því eftir sem bankaráðið leggur þar til. Ef við fylgjum lögunum og um leið, hafandi sagt það, er mikilvægt að við framkvæmum þau með þessum hætti, tel ég að þetta uppfylli þau skilyrði sem hv. þingmaður nefnir.

Hv. þingmenn hafa aðeins rætt þá ákvörðun að leggja til að Fjármálaeftirlitið fari í heilu lagi inn í Seðlabankann. Á það hefur verið bent að ákveðin mál sem eru í Seðlabankanum, þ.e. lánamál ríkisins, heyri undir Fjármálaeftirlitið. Þá vil ég í fyrsta lagi segja að það er auðvitað ákvörðun fjármálaráðuneytis á hverjum tíma hvar lánamál ríkisins eiga heima en um leið er farið yfir það nokkuð ítarlega í greinargerð að við mótun þess skipulags á Seðlabankanum sem lagt er til í frumvarpinu hefur auðvitað verið horft til þessara þátta, þ.e. að byggja þessa eldveggi, að skilgreina hlutverk varaseðlabankastjóra yfir hverju sviði. Þar var leitast við, eins og segir hér, „að tryggja valddreifingu í skipulaginu sem auk ákvæða í starfsreglum bankans gætu tryggt viðunandi sjálfstæði á milli þessara verksviða. Þannig er ákvörðunarvald í eftirlitsmálefnum alfarið hjá fjármálaeftirlitsnefnd og getur nefndin einungis framselt það vald til varaseðlabankastjóra á sviði fjármálaeftirlits, í málum sem ekki teljast meiri háttar.“

Við teljum því að þetta sé nokkuð skýrt í lögunum. Sömuleiðis viljum við benda á það að eftir að hafa rýnt þá hugmynd, eins og ég nefndi áðan, að aðskilja starfsemi Fjármálaeftirlitsins í eindarvarúðareftirlit og viðskiptaháttaeftirlit, var það okkar eindregna skoðun að þá yrði viðskiptaháttaeftirlitið of veikt sem sjálfstæð eining, að við værum í raun og veru að glata ákveðinni samlegð sem fælist í því að hafa þessa þætti saman. Með þessu skipuriti teljum við að við séum að byggja ákveðna eldveggi. Ég skil algerlega hv. þingmenn sem reisa hér ákveðin flögg og hafa áhyggjur af því að stofnunin sé orðin stór, hún verður stór, en um leið tel ég að við séum að fá miklu meira út úr sameinaðri stofnun. Það hefði ekki verið farsæl leið að fara að rífa Fjármálaeftirlitið í sundur, sameina hluta þess inn í Seðlabankann og skilja viðskiptaháttaeftirlitið eitt eftir.

Ég held að við höfum hér tækifæri til þess að tryggja ákveðna valddreifingu. Ég tel að við höfum tækifæri til að skapa mun meira gagnsæi í kringum þær ákvarðanir sem teknar eru í efnahags- og peningastefnumálum. Ég heyri þau vonbrigði sem ýmsir hv. þingmenn sem koma úr ólíkum áttum lýsa um það að við byggjum á þeirri peningastefnu sem hefur verið undanfarin ár og um leið þakka ég fyrir orð hv. formanns efnahags- og viðskiptanefndar. Við höfum reynt að vanda okkur mjög í þessu ferli. Ég átta mig á því að hér hefur verið unnið tiltölulega hratt, en ég er ekki á því að hratt sé endilega slæmt. Hratt getur bara verið mjög gott svo fremi sem fólk gefi sér nægan tíma til að vanda til verka. Og ég tel að þingið og nefndin hafi nægan tíma til þess að fara vel yfir málið og sinna því af þeim krafti sem þarf til að klára málin áður en þingi lýkur.

Ýmsir hafa líka rætt þá miklu ákvörðun sem blasir við með skipan nýs seðlabankastjóra. Ég ætla ekki að ræða hana hér. Ég vil bara segja það, eins og ég sagði áðan í minni ræðu, að ég tel að það hafi verið mjög jákvætt skref sem stigið var fyrir tíu árum þegar komið var á því fyrirkomulagi að hæfnisnefnd gerði ákveðnar tillögur til ráðherra um skipan seðlabankastjóra. Um leið getur það auðvitað verið erfiður kaleikur fyrir hvern sem gegnir embætti ráðherra að velja á milli hæfra einstaklinga. Ég tel mjög mikilvægt að þar sé líka vandað til verka. Ég vil ítreka það, því að fólk ræðir aðeins tímamuninn, að skipunartími seðlabankastjóra rennur út í ágúst en þessi lög taka gildi, ef þau verða að lögum í vor, 1. janúar 2020, að það er auðvitað svo að allir sem sækja um þetta embætti gera sér fullkomlega grein fyrir þeim lagabreytingum sem eru í farvatninu og átta sig alveg á því verksviði sem er fram undan við sameiningu stofnana.

Að þessu sögðu vil ég þakka hv. þingmönnum fyrir góðar athugasemdir og margar hverjar mjög skiljanlegar í stóru máli, en treysti líka á hv. efnahags- og viðskiptanefnd að taka sér þann tíma sem hún þarf til að vanda sig. Vonandi höfum við unnið okkur í haginn með þeirri kynningu sem þegar hefur farið fram og við erum síðan að sjálfsögðu reiðubúin að eiga samtal við nefndina á síðari stigum þessa máls um hvaðeina sem kann að koma upp.