149. löggjafarþing — 87. fundur,  1. apr. 2019.

dreifing vátrygginga.

764. mál
[21:41]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um dreifingu vátrygginga. Með frumvarpinu verður hluti af tilskipun Evrópusambandsins nr. 2016/97, um dreifingu vátrygginga, leiddur í lög hér á landi. Með dreifingu vátrygginga er í fyrsta lagi átt við starfsemi sem felst í því að gefa ráðgjöf um vátryggingarsamning, gera tillögu um hann eða gera samninginn. Dreifingin felst einnig í að aðstoða við umsýslu og efndir samningsins.

Í öðru lagi felst í dreifingu vátrygginga sú starfsemi að veita upplýsingar um vátryggingarsamning á vefsíðu eftir viðmiðun sem viðskiptavinur velur. Einnig felst í dreifingu vátrygginga að gera samantekt um vátryggingar sem eru í boði ásamt verði, samanburði eða afsláttum ef viðskiptavinur hefur gert vátryggingarsamning á vefsíðunni.

Dreifingaraðilar eru vátryggingafélög, vátryggingamiðlarar, vátryggingaumboðsmenn og aðilar sem dreifa vátryggingum sem aukaafurð.

Í frumvarpinu eru ákvæði sem varða starfsemi dreifingaraðila. Í frumvarpinu eru ákvæði um starfsleyfi vátryggingamiðlara og frjálst flæði þjónustu þeirra á Evrópska efnahagssvæðinu. Þá eru ákvæði um skráningu og fjárhagslegar kröfur dreifingaraðila annarra en vátryggingafélaga ásamt ákvæðum um hæfi og hæfni dreifingaraðila. Með frumvarpinu er lagt til að felld verði brott lög um miðlun vátrygginga.

Helstu nýmæli sem lögð eru til í frumvarpinu eru eftirfarandi: Frumvarpið gildir um vátryggingamiðlara og vátryggingaumboðsmenn og jafnframt um aðila sem dreifa vátryggingu sem aukaafurð og vátryggingafélög.

Vátryggingamiðlarar mega ekki hafa náin tengsl við aðra starfsemi eða einstaklinga sem getur orðið til þess að hindra eftirlit Fjármálaeftirlitsins.

Fjármálaeftirlitið skal skrá þá aðila sem eiga meira en 10% eignarhlut í starfsemi vátryggingamiðlara, vátryggingaumboðsmanna og aðila sem dreifa vátryggingu sem aukaafurð.

Gerð er sú krafa að stjórnarmaður og framkvæmdastjóri vátryggingamiðlunar, einstaklingur sem er vátryggingamiðlari, sá sem ber ábyrgð á dreifingu vátrygginga sem aukaafurð sem og vátryggingasölumenn hafi gott orðspor. Dreifingaraðilar skulu hafa lágmarksþekkingu á skilmálum vátrygginga, meðferð krafna, lögum sem varða vátryggingar og reglum um eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti.

Framkvæmdastjóri vátryggingamiðlunar, einstaklingur sem er vátryggingamiðlari og vátryggingasölumenn skulu árlega fara í endurmenntun eða starfsþjálfun til að tryggja hæfi og hæfni þeirra í starfi.

Ákvæði um endurgjald er ítarlegra en í gildandi lögum og skal dreifingaraðili nú tryggja að endurgjald fyrir dreifingu vátrygginga brjóti ekki á bága við þá skyldu að hafa hagsmuni væntanlegs vátryggingartaka í fyrirrúmi. Endurgjald má ekki vera þess eðlis að það hvetji til þess að mælt sé með tiltekinni vátryggingu umfram aðra sem hentar vátryggingartaka betur.

Ef dreifingaraðilar hyggjast veita þjónustu í öðru aðildarríki eða stofna þar útibú skal tilkynna fleiri atriði en samkvæmt gildandi lögum til Fjármálaeftirlitsins. Meðal annars skal tilgreina hvaða starfsemi er fyrirhuguð og greinaflokka vátrygginga í starfseminni.

Fjármálaeftirlitið getur hafnað því að tilkynna um starfsemi útibús í öðru aðildarríki ef það hefur ástæðu til að ætla að stjórnskipulag eða fjárhagsstaða félags sé þannig að það hafi ekki burði til að stofna útibúið.

Að lokum getur Fjármálaeftirlitið stöðvað þjónustu án starfsstöðvar og starfsemi útibús hér á landi ef nauðsyn krefur.

Í frumvarpinu er kveðið á um skyldu til að koma á fót úrskurðarnefnd vegna dreifinga vátrygginga svo unnt sé að skjóta ágreiningi þangað vegna réttinda og skyldna viðskiptavina.

Virðulegi forseti. Meginmarkmið frumvarpsins er að samþætta markaði og auka neytendavernd. Til að ná þessu markmiði eru gerðar auknar og samræmdar kröfur til þeirra sem dreifa vátryggingum. Kröfurnar ganga lengra og ná til fleiri aðila en núgildandi kröfur og því verður breyting á rekstrarumhverfi þeirra sem dreifa vátryggingum. Þó er hvorki talið að frumvarpið takmarki fjölda dreifingaraðila á markaði né hafi áhrif á möguleika þeirra eða frumkvæði til að mæta samkeppni. Frumvarpið felur í sér auknar skyldur á Fjármálaeftirlitið sem hefur í langtímaáætlun lagt mat á þær skyldur. Samkvæmt henni er ekki gert ráð fyrir að frumvarpið hafi fyrirséðar breytingar á tekjur eða útgjöld Fjármálaeftirlitsins. Ekki er gert ráð fyrir að lögfesting frumvarpsins hafi fjárhagsleg áhrif á ríkissjóð.

Virðulegi forseti. Ég legg til að frumvarpi þessu verði vísað til efnahags- og viðskiptanefndar og til 2. umr. að lokinni þessari umræðu.