149. löggjafarþing — 88. fundur,  2. apr. 2019.

störf þingsins.

[13:32]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég rak augun í fyrirsögn í Mannlífi núna um helgina og þar er spurt: Hvers vegna er svona dýrt að veikjast á Íslandi? Er það fjárhagslegt gjaldþrot að verða veikur af krabbameini á Íslandi? Hvernig stendur á því að kostnaðurinn við að veikjast af krabbameini getur farið yfir milljón fyrir utan vinnutap? Það kostar t.d. ekki krónu, ekki eina krónu, að veikjast í Bretlandi. Við erum að tala um lyfjakostnað og alls konar kostnað upp á 400.000 kr. En það sem slær mig eiginlega mest er að einstaklingur úti á landi þarf að borga 600.000 kr. í ferðakostnað.

Ég ætla að lesa annað sem kemur skýrt fram í greininni, með leyfi forseta:

„Ég viðurkenni alveg að mesta orkan og áhyggjurnar fara í pappíra, umsóknir, fjármál og þess háttar.“

Það er með ólíkindum að við ætlum líka, ofan í krabbamein, að láta fólk verða fyrir andlegu tjóni vegna fjárhagsáhyggna. Það er lýjandi og það er okkur til háborinnar skammar á Alþingi að við skulum láta viðgangast að fólk sem verður veikt verði að glíma við fjárhagslegar áhyggjur og eigi ekki í sig og á.

Þetta á ekki bara við um einstaklinga með krabbamein, það á líka við um einstaklinga sem eru með börn. Það að veikt barn þýði að foreldrar þess verði fjárhagslega næstum öreigar við það og geti ekki einu sinni haldið íbúð eða átt fyrir mat eða lyfjum er okkur til háborinnar skammar. Ég spyr: Hvernig í ósköpunum getum við látið þetta viðgangast ár eftir ár án þess að bregðast á neinn hátt við?