149. löggjafarþing — 88. fundur,  2. apr. 2019.

störf þingsins.

[13:34]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg):

Herra forseti. Í síðasta mánuði beindi ég fyrirspurn til ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um húsbíla, svokallaða Campers á ensku. Svar ráðherra barst í vikunni er leið og er um margt áhugavert. Ég hvet hv. þingmenn til að kynna sér það.

Það sem vekur athygli er í fyrsta lagi að fram kemur að það er ekki fyllilega vitað hversu margar gistinætur eru í slíkum farartækjum utan hefðbundinna tjaldsvæða, en þær eru líklega á bilinu 150.000–250.000 á ári. Fjöldinn gæti þannig verið á bilinu 2%–3% allra gistinátta og gistináttagjald af þeim gæti þá verið á bilinu 45–75 milljónir á ári. Þessar tölur eru þó með þeim fyrirvara að ekki er enn sem komið er talið sérstaklega með tilliti til þessara gistikosta heldur eru þeir taldir með tjaldgistingu.

Í fyrirspurninni var einnig spurt um hvort mögulegt væri að innheimta gistináttaskatt af leigu slíkra bifreiða af bílaleigunni, þ.e. þegar bíllinn er leigður út. Í rauninni er ekkert í lögum um gistináttagjald sem hindrar það. Hins vegar er enn sem komið er gert ráð fyrir að leigjendur bílanna greiði á þeim gististöðum sem þeir fara á, þ.e. er á tjaldstæðunum. Þingmenn þekkja umræðuna sem skotið hefur upp kollinum öðru hvoru um að slíkir bílar gisti oft utan skilgreindra svæða og valdi stundum jafnvel ónæði eða ama. Ef gistináttagjaldið væri innheimt af bílaleigunni væri hins vegar hægt að beina bílunum inn á hefðbundin tjaldsvæði og minnka þannig ágang á svæði utan þeirra.

Það er fagnaðarefni að ráðherra telur að starfshópur á vegum Stjórnstöðvar ferðamála, sem skoðar nú gjaldtöku af ferðaþjónustunni í samræmi við stjórnarsáttmálann, ætti að skoða þessa leið eða sambærilegar til að innheimta gjaldið. Slíkt væri bæði skynsamlegt fjárhagslega og einnig góð leið til að beina ferðamönnum í að gista þar sem gert er ráð fyrir að þeir hafi næturstað.