störf þingsins.
Herra forseti. Loftlagsbaráttan verður unnin í smáum og stórum skrefum. Það er mikilvægt að halda þeim öllum til haga á raunsannan hátt og blása fólki bjartsýni og þor í brjóst. Ekki gera lítið úr stefnu eða árangri, jafnvel halda því fram að ekkert sé gert af viti og að við höfum séð að við höfum aðeins tíu ár til stefnu, eftir það sé baráttan töpuð.
Það kemur fram í svari hæstv. umhverfis- og auðlindaráðherra við fyrirspurn minni um samgöngusamninga að Stjórnarráðið, stofnanir og fyrirtæki í meirihlutaeigu ríkisins skuli setja sér loftslagsstefnu. Meðal markmiða sem hægt er að setja í hana er að auka hlutfall starfsmanna sem eru með samgöngusamninga þar sem starfsmenn nýta sér almenningssamgöngur eða vistvænan ferðamáta til að ferðast til og frá vinnu. Það er aftur á móti í höndum hvers og eins ríkisaðila að ákveða hvort boðið sé upp á slíka samninga og ég hvet til þess að þeir verði hafðir sem allra, allra flestir og mestir.
Ég spurði enn fremur um kolefnisjöfnun flugferða og fleira. Þá kemur það fram í loftslagsstefnu Stjórnarráðsins, sem verið er að leggja lokahönd á, að gert er ráð fyrir að Stjórnarráðið kolefnisjafni starfsemi sína, þar með talið losun sem verður vegna flugferða starfsmanna jafnt innan lands sem utan. Í stefnunni er auk þess gerð krafa á ríkisstofnanir um slíka kolefnisjöfnun.
Þið heyrið og sjáið að þarna er verið að taka raunsönn skref sem við eigum að halda á lofti og minna á og duga til að auka bjartsýni. Þess vegna er mjög brýnt að við tölum gjarnan öðruvísi en við gerum, ýmist þingmenn, fjölmiðlar eða sérfræðingar, vegna þess að það er engin ástæða til að tala nein skref í loftslagsjöfnun eða loftslagsbaráttu niður.