störf þingsins.
Hæstv. forseti. Það voru góðar fréttir sem bárust úr Karphúsinu um yfirlýsingu frá ríkissáttasemjara um samkomulag verkalýðshreyfingarinnar og Samtaka atvinnulífsins um meginlínurnar í kjarasamningum með fyrirvara um aðkomu stjórnvalda og samninganefnda og félagsmanna. Það má leyfa sér að binda vonir við að málið klárist. Það yrðu virkilega góðar fréttir fyrir atvinnulíf og efnahag.
Ég ætlaði að ræða ríkisfjármálaáætlun og auðvitað hafa kjarasamningar, að um semjist, mikla þýðingu fyrir forsendur þeirrar áætlunar. Ég ætlaði þó ekki að ræða þessar forsendur eða efni áætlunarinnar heldur um fyrirkomulag þeirrar vinnu sem fram undan er í þinginu og hjá fastanefndum þingsins.
Í bréfi hv. fjárlaganefndar sem sent var á formenn fastanefnda leitast nefndin við að koma vinnunni fram undan í það mót að hún verði skilvirkari og ekki síður að samvinna um framgang málsins verði skýrari. Sökum þess hve fjármálaáætlun er umfangsmikið mál er gagnlegt fyrir fjárlaganefnd að fá ábendingar og greinargerð um stefnumörkun málefnasviða og aðgerðir enda fastanefndir betur inni í þeim þingmálum sem þessu tengjast.
Nefndin hefur í þessu skyni tekið saman ábendingar nefndarinnar frá síðustu áætlun, 2019–2023, og flokkað eftir fastanefndum til að þingið geti beitt sér frekar í að fylgja þeim eftir. Hingað til hafa umsagnir og álit fastanefnda verið mjög vönduð og gagnleg fyrir fjárlaganefnd en um leið yfirgripsmikil og gætt nokkurrar skörunar í umfjöllun. Þá er það umhugsunarefni að hingað til hefur þingið bent á fjölmarga þætti sem mættu betur fara og skilað ábendingum í sínum greinargerðum en þó ekki gert tillögur að breytingum hingað til á útgjaldarömmum áætlunarinnar. Áætlað er í þessu bréfi að vinnan fram undan taki nokkrar vikur en fastanefndir skili umsögnum og ábendingum til hv. fjárlaganefndar fyrir 10. maí nk.