störf þingsins.
Herra forseti. Ég vil taka upp mál sem hefur verið rætt í áratugi og er mikið þjóðþrifamál. Í morgun skrifar Ásgeir Theódórs læknir grein í Morgunblaðið um ristilkrabbamein þar sem kemur fram að nýgengni þessa meins fer hækkandi þvert á spár. Um leið og læknirinn hvetur fólk til að huga að heilsu sinni með því að fara í skoðun brýnir hann stjórnvöld til aðgerða. Fram kemur að á síðustu fimm árum hafa 67 einstaklingar látist árlega vegna þessa krabbameins sem tekur bæði til meins í ristli og endaþarmi. Við því er að búast að tíðni þessarar tegundar krabbameins hækki með hækkandi aldri þjóðarinnar. Kostnaður við víðtæka skimun í eldri aldurshópum er hreint smáræði miðað við þann ávinning sem hlýst af því að koma í veg fyrir að meinið komist á síðari stig.
Sá kostnaður sem einstaklingur þarf að inna af hendi, óski hann þess að fara í ristilspeglun, getur komið í veg fyrir að fólk í tekjulægri hópum fari í þá tiltölulega einföldu og oftast sársaukalitlu skoðun. Fjárhagur manna má ekki standa í vegi fyrir því að með skimun megi afstýra því að einstaklingar greinist allt of seint, fái þeir krabbamein af þeirri tegund. Það er ekki ásættanlegt.
Herra forseti. Þetta er ekki nýtt úrlausnarefni, það hefur verið rætt áratugum saman. Hér var samþykkt þingsályktunartillaga árið 2007. Og hvað hefur gerst síðan? Þessi skimun hefur ekki farið í gang enn. Það er kallað eftir skýrri stefnu stjórnvalda í málinu. Innleiðingin gengur allt of hægt. Um stórt lýðheilsumál er að ræða sem snýr bæði að körlum og konum. Aðalatriðið er, og mest um vert, að greina þetta krabbamein á frumstigi og koma þannig í veg fyrir að meinið komist á óviðráðanlegt stig.