störf þingsins.
Virðulegur forseti. Nú þurfum við að standa við bakið á atvinnulífinu. Mikill uppgangur hefur verið í íslensku samfélagi undanfarin ár. Þá hafa fyrirtækin getað nýtt þann kraft til að skapa frekari verðmæti hér, skaffa fólki atvinnu og standa undir þeim hagvexti sem verið hefur. Núna síðast með falli WOW air eru blikur á lofti. Að vísu var byrjaður samdráttur í ferðaþjónustu og flugi WOW fyrir fallið þannig að fyrirtækin, t.d. á Suðurnesjum, voru farin að finna fyrir samdrætti fyrir fall WOW og náttúrlega enn meira núna eftir fall þess.
Við höfum líka heyrt um loðnubrestinn. Við höfum heyrt um seinkun á framkvæmdum, eins og vegaframkvæmdum og orkuframkvæmdum á Vestfjörðum, og bakslag sem kom vegna leyfa í fiskeldi og annað slíkt. Allt það hefur haft þau áhrif að fólk heldur að sér höndum. Þess vegna er mikilvægt að atvinnurekendum sem ráða fólk í vinnu til að stunda hér verðmætasköpun sé gert kleift að halda þeirri vinnu áfram og sjá til þess að halda hjólum atvinnulífsins gangandi þannig að verðmætasköpunin fyrir velferðina haldi áfram.
Því vil ég benda á nokkrar tillögur sem þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa komið fram með í þessu efni og lagt fram á Alþingi. Það eru leiðir sem við getum farið til að standa við bakið á atvinnulífinu, til þess að halda velferðinni áfram. Þar vil ég fyrst nefna að auka endurgreiðslur í fyrirkomulaginu Allir vinna úr 60% í 100% og hafa frístundahús þar inni í, með 100% endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu; endurgreiða virðisaukaskatt við fráveituframkvæmdir; aðstoða sveitarfélögin og opinbera aðila við að auka framkvæmdastig sitt, sem er um leið heilbrigðismál, og leyfa íþróttafélögum og öðrum almannaheillasamtökum, eins og Landsbjörgu og fleirum, að byggja aðstöðu sína og fá virðisaukaskattinn endurgreiddan af því. Allt er þetta hugsað til að auka framkvæmdir (Forseti hringir.) nú þegar samdráttur er í ferðaþjónustunni og annars staðar og til að tryggja aukna verðmætasköpun í samfélaginu.