149. löggjafarþing — 88. fundur,  2. apr. 2019.

störf þingsins.

[13:52]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Það var gott að vakna í morgun og heyra að það væri flötur á samningi milli aðila á vinnumarkaði. Það var óvenju bjart yfir þeim og mér heyrist skapandi hugsun geta leitt til nýstárlegrar nálgunar. Ég bind því miklar vonir við þennan áfanga. En undirritun samninga hangir á aðkomu stjórnvalda eins og lengi hefur verið vitað og ég bið því hæstv. ríkisstjórn að halda vel á spöðunum í framhaldinu.

Nú reynir einmitt á það hvort ríkisstjórnin er tilbúin til að koma með útspil sem mikill meiri hluti landsmanna hefur sagst sammála um, þ.e. að lækka skattbyrði á lág- og millitekjuhópana, hópana sem urðu eftir í fordæmalitlum uppgangi síðustu ára. Samfylkingin mun að sjálfsögðu mæta jákvæð öllum tillögum sem miða í þessa átt. Þegar á móti blæs getum við Íslendingar sýnt að við erum samheldin þjóð og ég held að nú þurfum við á því að halda að þjappa okkur saman eftir áföllin sem hafa riðið yfir síðustu vikur.

Hlutverk ríkisstjórnar er að mæta fólki þar sem það er, ekki þar sem ríkisstjórnin óskar að það sé statt. Hún þarf því nú að bretta upp ermar og ráðast í aðgerðir til að tryggja fólki í landinu sómasamleg lífskjör og öryggi og vinna gegn ójöfnuði og að langþráðum stöðugleika. Ef það reynist nauðsynlegt að mynda nýja ríkisstjórn til þess að ráðast í þetta verkefni þá, herra forseti, verður svoleiðis að vera.