149. löggjafarþing — 88. fundur,  2. apr. 2019.

störf þingsins.

[13:57]
Horfa

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (S):

Hæstv. forseti. Ég hef aftur lagt fram frumvarp um breytingu á lögum um opinbera háskóla og lögum um háskóla sem gengur lengra en það frumvarp sem ég lagði fram fyrst. Frumvarpið sem ég hafði lagt fram gerði ráð fyrir því að einnig yrði litið til einstaklinga sem hefðu lokið sveinsprófi við inntöku í háskóla, en að þessu sinni geng ég lengra og aðalatriðið verður ekki stúdentspróf eða sveinspróf heldur færni og þekking sem svarar til krafna skólans um undirbúning fyrir nám á háskólastigi. Lögð skal áhersla á að lagt sé heildstætt mat á nemendur og meta skuli einstaklinga sem hafa lokið stúdentsprófi, sveinsprófi, öðru fag-, starfs- eða listnámi.

Með því er fólki gefið tækifæri sem hefur lokið öðru námi en stúdentsprófi en hefur samt nægjanlega reynslu, mögulega úr atvinnulífinu eða öðru, til að ráðast í háskólanám. Nú þegar er í lögunum kveðið á um undantekningar, að háskólum sé heimilt að innrita nemendur sem ekki hafi lokið stúdentsprófi, en ljóst er að undantekningin stuðlar að því að inntaka slíkra nemanda mætir ávallt afgangi. Með frumvarpinu er ekki markmiðið að galopna háskólamenntun heldur að háskólinn sé opnari við að taka á móti fjölbreyttum hópi, fjölbreyttari nemendum með mismunandi bakgrunn sem þó hafa næga þekkingu til að stunda háskólanám í ákveðnum greinum. Stúdentspróf verður að sjálfsögðu hin almenna bóklega leið til að undirbúa sig undir mikið af háskólanámi en háskólanum er þá í sjálfsvald sett hvernig hann velur í skólann og í ýmsar deildir og getur haft það eftir sínu höfði og mismunandi eftir deildum.

Það er sérstakt að hafa hitt mikið af fólki, hvar sem ég fer á landinu, sem ræðir þetta frumvarp við mig og spyr: Af hverju á sjúkraliðinn sem er með starfsreynslu og næga þekkingu og færni ekki að komast inn í hjúkrunarfræði? Af hverju á búfræðingurinn sem hefur starfað í lögreglunni í fjölda ára og með næga þekkingu og reynslu ekki að komast inn í lögreglufræðina eða listfræðingurinn með starfsreynslu úr leikskóla ekki að komast inn í leikskólakennaranám? Ég vil breyta því. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)