skerðingar vegna atvinnu- og lífeyrissjóðstekna eldri borgara og öryrkja.
Herra forseti. Ég þakka hv. málshefjanda fyrir að vekja máls á þessu þýðingarmikla máli. Sömuleiðis þakka ég hæstv. ráðherra fyrir hans framlag hér.
Ekki má undan dragast að leysa öryrkja úr hinni manngerðu fátæktargildru sem þeim hefur verið búin. Miðflokkurinn vill taka fast á þessum málaflokki. Í stjórnmálaályktun flokksins, sem samþykkt var á flokksráðsfundi um helgina segir svo, með leyfi forseta:
„Íslenska þjóðin eldist eins og á við um nágrannaþjóðirnar. Fjölgun aldraðra á komandi árum liggur fyrir í lýðfræðilegum gögnum og spám. Við því er mikilvægt að bregðast með tímanlegum og réttum hætti. Miðflokkurinn vill að eldri borgarar hafi tök á að lifa mannsæmandi lífi. Ríkisstjórnin hefur daufheyrst við kröfum um að bætur almannatrygginga“ — sem tekur auðvitað jafnt til aldraðra og öryrkja — „fylgi launaþróun. Hækkun frítekjumarks vegna atvinnutekna í 100 þúsund krónur gengur of skammt. Miðflokkurinn vill að atvinnutekjur rýri ekki lífeyristekjur enda liggja fyrir útreikningar sem ekki hafa verið bornar brigður á að slík aðgerð kosti ríkissjóð ekki svo mikið sem eina krónu.
Miðflokkurinn telur einnig brýnt að hækka frítekjumark vegna fjármagnstekna og að fast verði tekið á skerðingum bóta vegna greiðslna úr lífeyrissjóðum sem grafið hefur undan tiltrú á lífeyriskerfinu og skilur aldrað láglaunafólk eftir jafnsett og fólk sem ekkert hefur greitt í lífeyrissjóð á starfsaldri. Miðflokkurinn vill að öldruðum sé gert kleift að búa á heimilum sínum en að úrræði séu fyrir hendi þegar slíks er ekki lengur kostur. Miðflokkurinn vill gangast fyrir átaki til að reisa dvalar- og hjúkrunarheimili fyrir aldraða sem mæti þeirri þörf sem fyrir hendi er á hverjum tíma. Aldraðir sem skilað hafa ævistarfi sínu eiga skilið að búa við góð kjör og öryggi.“