149. löggjafarþing — 88. fundur,  2. apr. 2019.

skerðingar vegna atvinnu- og lífeyrissjóðstekna eldri borgara og öryrkja.

[14:18]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka framsögumanni, hv. þm. Guðmundi Inga Kristinssyni, fyrir umræðuna. Hann er óþreytandi við að ræða málefni eldri borgara og öryrkja og við erum nær alltaf sammála í þeim efnum. Mér fannst hann koma með mikilvægan punkt sem við höfum kannski ekki alveg verið sammála um, en hér kom hann með dæmi um einstakling sem fær 1 milljón í lífeyrisgreiðslur en fær samt sem áður 125.000 kr. frá Tryggingastofnun. Ég fékk aðstoð í tölvunni og þetta dæmi er hárrétt eins og hann leggur það fram. Þetta er auðvitað ekki í neinu samræmi við það sem við höfum verið að tala um í þessum sal, að þeir sem hafa háan lífeyri fái líka bætur frá Tryggingastofnun.

Virðulegi forseti. Ég held að mjög mikilvægt sé að þessar reglur verði endurskoðaðar. Það er gríðarlega mikilvægt. Ég heyri líka að ákveðnir þjóðfélagsþegnar sem geta t.d. verið með mjög há laun geta nýtt séreignarsparnað fyrstu árin þegar þeir komast á lífeyri og fengið þannig líka fullar bætur frá Tryggingastofnun. Það er ekki kerfi sem við erum að hugsa um. Það er ekki kerfi sem við höfum talað um að verja. Ég tek þess vegna undir með hv. þm. Guðmundi Inga Kristinssyni að þetta er verk sem þarf að fara í. Við erum að tala um að reyna að hafa kerfið réttlátt. Margir fá allt of lágar bætur eins og hér kom fram og ég held að það sé verk að vinna að færa þá háu bótaeinstaklinga og færa tekjur þeirra til þeirra sem minna hafa. Það er verkefnið fram undan, við erum sammála um það og ég ætla að þakka hv. þingmanni fyrir að vekja athygli á þessu ótrúlega máli í ræðu.