skerðingar vegna atvinnu- og lífeyrissjóðstekna eldri borgara og öryrkja.
Virðulegur forseti. Ég vil leyfa mér að byrja á því að þakka málshefjanda fyrir að taka upp þetta efni, sem er því miður gamalkunnugt: skerðingar í almannatryggingakerfinu sem skilja þúsundir lífeyrisþega eftir í fjárhagslegri úlfakreppu. Við verðum að stíga skref út úr þessu lamandi kerfi sem er af manngerðum toga og pólitískum toga. Þetta er stefna um samfélagsgerð.
Ég ætla ekkert sérstaklega að tala um skerðingar. Það er annar hópur á þessu stigi sem er okkur í Samfylkingunni ofar í huga, hópur sem þekkir ekki skerðingar, bara skort og fátækt. Það er aldrað fólk, iðulega farið að kröftum, hefur kannski verið utan vinnumarkaðar hluta ævi sinnar eða búið við langvarandi heilsubrest, hefur lítinn eða engan lífeyrissjóðsrétt og dregur fram lífið af strípuðum lífeyri frá Tryggingastofnun. Þetta eru bláfátækir Íslendingar.
Þetta er ástand sem er til vansa í okkar menningarsamfélagi hjá sjöttu hamingjusömustu þjóð í heimi. Það eru að lágmarki 3.000 manns 65 ára og eldri sem lifa undir fátæktarmörkum á Íslandi, 8% eldri borgara. Sennilega eru þeir miklu fleiri, því miður. Þessar tölur er að finna í nýlegri skýrslu starfshóps félags- og barnamálaráðherra um kjör aldraðra. Í þessum hópi eru einstaklingar sem lifa við kvíða, vanlíðan og skert lífsgæði. Þetta er veruleiki á Íslandi í dag.
Þetta er viðráðanlega stór hluti þeirra 35.000 eldri borgara sem eiga rétt til greiðslna frá Tryggingastofnun. En að sama skapi er það til háborinnar skammar að skuggi fátæktar grúfi yfir þó svona stórum hópi. Það á ekki bara við um aldraða. Það er einnig hlutskipti stórra hópa öryrkja.
Hverjar eru tillögurnar til úrbóta? Hvar eru þær og hvenær koma þær fram? Ég spyr hæstv. ráðherra þeirrar spurningar því að við höfum ekkert val, við verðum að gera hér úrbætur.