149. löggjafarþing — 88. fundur,  2. apr. 2019.

skerðingar vegna atvinnu- og lífeyrissjóðstekna eldri borgara og öryrkja.

[14:23]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Tilgangur almannatryggingakerfisins frá upphafi hefur verið að aðstoða þá sem þurfa aðstoð. Verkalýðshreyfingin barðist fyrir lögum um alþýðutryggingar í 15 ár áður en lögin um þær voru loks samþykkt. Þetta er því grundvallarstoð í velferðarkerfinu okkar. En það er rétt að muna að aðstoða þá sem aðstoða þarf og þeirri aðstoð þarf að forgangsraða, beina stuðningnum þangað sem hans er mest þörf.

Eitt fyrsta verkefni þessarar ríkisstjórnar var að hækka frítekjumark atvinnutekna eldri borgara upp í 100.000, enda forgangskrafa hagsmunasamtaka þeirra. Sú ráðstöfun hefur skilað sér í talsverðum kjarabótum fyrir þá eldri borgara sem hafa atvinnutekjur. En hækkun frítekjumarksins hefur ekki skilað sér í fjölgun eldri borgara með atvinnutekjur og þeim fækkaði raunar milli áranna 2017 og 2018.

Í desember á síðasta ári skilaði starfshópur félagsmálaráðherra af sér ítarlegri skýrslu um stöðu þeirra eldri borgara sem hvað höllustum fæti standa í samfélaginu. Sem betur fer er sá hópur ekki stór en mikilvægt að beina sjónum fyrst að þeim hópi til að hann festist ekki varanlega í fátækt. Þar tel ég að við þurfum ávallt að byrja. Við hljótum alltaf að forgangsraða þeim efst sem hafa mesta þörf fyrir aðstoð.

Þaðan kemur sérstaka framfærsluuppbótin sem hefur verið gagnrýnd fyrir að hafa allt of hörð skerðingarmörk, króna á móti krónu, en framfærsluuppbótinni var ætlað að tryggja lágmarkstekjur ef aðrar tekjur og bætur örorkulífeyrisþega næðu ekki ákveðnum lágmörkum. Ég held að allir séu sammála um að skerðingarmörkin séu allt of há og því ætlum við að breyta.

Forseti. Ég tel að full ástæða sé til að einfalda þau kerfi sem komin eru til ára sinna. Í þau hafa verið bútasaumaðar lausnir sem ekki ríkir sátt um í dag og um þau hefur staðið yfir vinna í langan tíma. Breytingarnar þurfa að tryggja framfærslu og að þeir sem það geta geti bætt sinn hag. En við þurfum að ná árangri, samstöðu og lendingu þannig að það hverfi ekki alltaf einhver frá borðinu þegar kemur að endalokum einhvers samtals.