skerðingar vegna atvinnu- og lífeyrissjóðstekna eldri borgara og öryrkja.
Forseti. Það kemur fram í Píratakóðanum, sem er sameiginleg gildayfirlýsing Pírataflokka um allan heim að Píratar virði mannhelgi. Þeir leggja sig fram um að koma á samfélagi þar sem samstaða ríkir og þar sem hinir sterku vernda og aðstoða þá sem veikir eru. Þetta er grunnurinn sem við byggjum á og m.a. ástæða þess að ég og aðrir Píratar höfum lagt mikla áherslu á að leiðrétta kjör viðkvæmra hópa í samfélaginu. Að leiðrétta kjör þessara hópa snýst ekki einungis um að tryggja mannréttindi heldur snýst það einnig um skynsamlega og ábyrga stefnumörkun. Núverandi fyrirkomulag gerir lítið annað en að tryggja fátækt þeirra sem stóla á lífeyrisgreiðslur, fyrirkomulag sem er algjörlega galið í ljósi þeirrar þekkingar sem við búum yfir í dag um afleiðingar fátæktar á andlega og líkamlega heilsu fólks.
Það ætti því að vera ljóst að útrýming fátæktar er fjárfesting til framtíðar. Hindranir á athafnafrelsi og getu fólks til að auka lífsgæði sín í formi skerðinga og lágra lífeyrisgreiðslna mun aldrei verða sparnaður. Að halda slíku fram afhjúpar skort á framsýni og vítaverðan vanskilning á samspili kerfa. Markmið almannatryggingakerfis er ekki ölmusa með ströngum skilyrðum heldur greiðslur sem stuðla að því að einstaklingar geti framfleytt sér og lifað sjálfstæðu lífi. Markmið um sjálfstætt líf felur í sér að við útrýmum fátækt og þeirri frelsisskerðingu sem henni fylgir.
Forseti. Innviðir eru meira en vegir og brýr, það er fólkið í landinu. Til að tryggja velgengni samfélagsins þurfum við að fjárfesta í fólki, í einstaklingum og gera þeim kleift að lifa sjálfstæðu lífi á eigin forsendum.
Ég hef tekið eftir því að í þessari góðu umræðu hafa margir, stjórnarliðar líka og ráðherrar, talað um þörf þess að einfalda bótakerfið, afnema framfærsluuppbótina og minnka eða afnema skerðingar. Það er frábært. En lífeyrisþegar eru búnir að bíða lengi eftir þessum breytingum og Píratar eru með eitt þingmál sem situr nú fast í velferðarnefnd af því að stjórnarliðar (Forseti hringir.) neita að taka það út úr nefndinni, líklegast vegna þess að þeir þora ekki að greiða atkvæði gegn því máli þegar að því kemur í þingsal.
Hvers vegna er ekki hægt að taka þetta mál út og afgreiða það bara strax? (Gripið fram í: Heyr, heyr.)