149. löggjafarþing — 88. fundur,  2. apr. 2019.

skerðingar vegna atvinnu- og lífeyrissjóðstekna eldri borgara og öryrkja.

[14:27]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að vekja máls á þessu mikilvæga máli. Það sorglega við krónu á móti krónu skerðinguna og löngu úr sér gengið fyrirkomulag örorkulífeyrismála hér á landi er að það er búið að vera í umræðunni í fleiri ár að endurskoða það kerfi. Í a.m.k. áratug er búin að standa nær samfelld vinna um endurskoðun lífeyriskerfis fyrir öryrkja og eldri borgara.

Það tókst að ljúka þeirri vinnu gagnvart eldri borgurum 2016, en því miður sátu öryrkjar eftir þá. Ég óttast að á því verði afskaplega lítil breyting á komandi árum því að ekki er að sjá á fjármálaáætlun þessarar ríkisstjórnar að neitt fjármagn sé ætlað til þess að taka á kostnaði við t.d. afnám á krónu á móti krónu skerðingu. Sá kostnaður hefur verið metinn á hartnær 10 milljarða til skemmri tíma litið. Vonandi mun sú breyting leiða til þess að draga muni úr nýgengi örorku hér enda er ekkert eins atvinnuhamlandi og króna á móti krónu skerðingin.

Til að byrja með er viðbúið að af þeirri breytingu hljótist allnokkur kostnaðarauki fyrir ríkissjóð. En það er alveg augljóst þegar rýnt er í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar að ekki er gert ráð fyrir þeim kostnaði þar.

Þar af leiðandi hlýtur stærsta spurningin til hæstv. ráðherra að vera: Hvernig á að fjármagna þær breytingar sem lofað hefur verið að ráðast í?

Rétt er að minnast þess að ráðherra hefur nýlega skýlt sér á bak við að ekki sé hægt að ráðast í leiðréttingar á skerðingum á örorkulífeyri þar sem ekki sé fjármagn fyrir hendi í gildandi fjárlögum til þeirrar leiðréttingar. Það sama hlýtur að eiga við um þetta. Það hlýtur að þurfa fjárheimildir til að ráðast í nauðsynlegar kerfisbreytingar. Þær fjárheimildir skortir.