skerðingar vegna atvinnu- og lífeyrissjóðstekna eldri borgara og öryrkja.
Forseti. Ég þakka þessa umræðu. Hún er þörf og ekki er vanþörf á því að brýna núverandi ríkisstjórn í þessum málum.
Mig langar að nefna tvö atriði sem fram hafa komið í umræðunni. Ég er alveg steinhissa á því að menn séu hissa á að ekki hafi fjölgað öldruðum á atvinnumarkaði út af 100-þúsundkallinum sem þeir geta unnið sér inn. Hver veður upp úr stólnum til að vinna sér inn 100-þúsundkall? Afsakið. Í annan stað er hin ástæðan fyrir því að aldraðir hafa ekki komið út á vinnumarkaðinn fyrir 100-þúsundkallinn, óttast ég, að þeir séu að vinna svart. Við höfum neytt kynslóðina sem skóp þetta þjóðfélag til að vinna svart.
Við erum með sveigjanleg starfslok í orði, 65–80 ára, en samt bönnum við starfsmönnum að vinna eftir sjötugt. Að vísu liggur í nefnd frumvarp frá Miðflokknum um að ríkisstarfsmenn megi vinna til 73 ára, ef þeir vilja og geta. Það fæst ekki tekið úr nefnd. Við lögðum um jólin fram tillögur við fjárlagaumræðu að atvinnutekjur rýri ekki lífeyristekjur, bara ekki. Það var fellt. Við lögðum líka fram að krónu á móti krónu skerðingu myndi linna um áramótin en ráðherra brá þá á það ráð að reyna að hræða eða neyða öryrkja til að taka upp starfsgetumat áður en þessi greiðsla kemur til.
Sá sem hér stendur var í nefnd sem var með þetta mál til umfjöllunar og það vita allir að til þess að hægt sé að taka upp starfsgetumat verða að vera til hlutastörf. Það verður að byrja á að skapa hlutastörf, sérstaklega hjá hinu opinbera, hjá sveitarfélögum, og með samningum við atvinnurekendur til að þeir sem eru metnir hæfir til að geta unnið sér inn einhverjar krónur reki sig ekki á vegg að mati loknu. Þess vegna er til skammar að ráðherrar skuli pína öryrkja til að taka upp starfsgetumat áður en þetta liggur fyrir.