149. löggjafarþing — 88. fundur,  2. apr. 2019.

skerðingar vegna atvinnu- og lífeyrissjóðstekna eldri borgara og öryrkja.

[14:36]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegur forseti. Ég vil eins og aðrir þakka fyrir þessa mikilvægu og fjölbreyttu umræðu. Það er margt sem þarf að ræða í henni. Við erum öll sammála um að við viljum gera vel við þá hópa sem eru hér til umræðu, eldri borgara og öryrkja, þó að deila megi um hvort eigi að ræða þá tvo hópa alltaf saman og blanda þeim saman, eins ólíkir og þeir eru á margan hátt.

Ég tek undir að það liggur mikið á að gera breytingar varðandi skerðingarnar hjá öryrkjum eins og hefur verið gert hjá eldri borgurum. Vonandi tekst okkur að klára það hið fyrsta og það er mjög mikilvægt. Það er líka mikilvægt að hvorugt þessara kerfa sé byggt þannig upp að fólk sé fest í einhvers konar fátæktargildru. Við erum öll sammála um þetta, að við viljum draga úr skerðingunum. Við viljum hjálpa þeim sem á því þurfa að halda. Þess vegna þurfum við að hafa það svolítið á hreinu hvað þær aðgerðir sem við förum í þýða. Ég tel ekki til mikils að vinna að fara í aðgerðir sem greiða fjármuni úr almannatryggingum, úr ríkissjóði, skattfé almennings, til fólks sem hefur næga framfærslu í dag á meðan til er fólk sem hefur ekki næga framfærslu.

Við þurfum að stilla okkar aðgerðir af þannig að við hjálpum þeim sem þurfa aukna framfærslu, að við borgum ekki úr ríkissjóði til fólks sem hefur nægt fjármagn á milli handanna. Þetta þurfum við að hafa algjörlega kýrskýrt. Ég tek alveg undir mikilvægi þess að leyfa fólki að vinna og þess vegna erum við búin að setja inn frítekjumark og lækka skerðingarnar úr 100% niður í 45%. Þar þurfum við að halda áfram og það gerum við ekki nema með aukinni verðmætasköpun í samfélaginu. Þetta þarf að fylgjast að og það er hægt að nota þessa mælikvarða á mörgum öðrum stöðum líka (Forseti hringir.) en þannig bara virka því miður ekki fjárlög ríkisins.