149. löggjafarþing — 88. fundur,  2. apr. 2019.

skerðingar vegna atvinnu- og lífeyrissjóðstekna eldri borgara og öryrkja.

[14:42]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg):

Herra forseti. Þetta er mikilvæg umræða sem við eigum um almannatryggingakerfið okkar, öryggisnetið, sem við sem samfélag höfum komið okkur upp fyrir þá sem sökum aldurs eða skertrar starfsgetu geta ekki séð fyrir sér með atvinnutekjum. Ég er hjartanlega sammála því að að sjálfsögðu eru skerðingar og skerðingarhlutföll, hvort sem er vegna atvinnutekna, lífeyrissjóðstekna eða einhvers annars, partur af þeirri umræðu.

Ég vil líka taka undir það sem hér hefur verið sagt, að það sé nauðsynlegt að einfalda kerfið þótt ekki væri nema bara til þess að þeir sem kerfið nota og þurfa á það að treysta geti áttað sig á réttindum sínum. Það er hlutur sem skiptir máli. Það að afnema krónu á móti krónu skerðinguna er partur af því. Mér finnst hins vegar líka mikilvægt að við föllum ekki í þá gryfju að um leið og við tölum um einföldun á kerfinu verði umræðan einfölduð vegna þess að þetta snýst um marga og ólíka þætti sem þurfa að spila saman með sanngjörnum hætti.

Þar finnst mér mikilvægt að halda nokkrum hlutum til haga. Einn þeirra er sá að ekki nema u.þ.b. fjórðungur örorkulífeyrisþega er með einhverjar atvinnutekjur þannig að við megum ekki fókusera bara á skerðingarhlutföll þeirra sem eru með atvinnutekjur. Við þurfum líka að hugsa um hina sem hafa ekkert annað sér til framfærslu. Við verðum að leggja meiri áherslu á endurhæfingu til að fólk komist út á vinnumarkaðinn. Við verðum að setja ábyrgð á vinnumarkaðinn, og þar með samfélag okkar, um að ráða fólk með skerta starfsgetu í vinnu. (Forseti hringir.) Svo verðum við að horfa til samspils lífeyrissjóðstekna og almannatrygginga. Það er risastór umræða sem því miður er ekkert pláss fyrir í þessari sérstöku umræðu.