149. löggjafarþing — 88. fundur,  2. apr. 2019.

skerðingar vegna atvinnu- og lífeyrissjóðstekna eldri borgara og öryrkja.

[14:44]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P):

Forseti. Þegar maður skoðar tölurnar fer mann að gruna sterklega að þetta sé bara hápólitískt mál. Ef við skoðum t.d. stjórnarsáttmálann, þ.e. hverjir séu kjósendur þeirra flokka sem eru núna í stjórn, forgangsraða þeir frekar á eldri borgara — kjósendaflokkurinn er þar — en þá sem eru með lægstar tekjurnar. Hjá þeim sem eru með lægstar tekjurnar, meira að segja hjá Vinstrihreyfingunni – grænu framboði, minnkar hlutfallið hjá þeim sem kjósa þá.

Á öðrum tekjustigum er það þannig að eftir því sem tekjur lækka hjá fólki kýs það frekar Vinstri græna — nema þeir sem eru í alveg lægsta tekjuflokknum. Þannig að við sjáum, og nú horfum við á stjórnarsáttmálann sjálfan, að ef við ætlum að reyna að meta hvað þessi ríkisstjórn ætlar að gera fyrir öryrkja kemur það fram á bls. 30, á eftir öllu öðru, alveg á næstsíðustu blaðsíðunni, þar detta inn þessi almannatryggingamál. Fyrst þá er talað um, með leyfi forseta:

„Tekjumark atvinnutekna aldraðra verður hækkað í 100.000 kr. strax um næstu áramót.“

Aldraðir settir í forgang. Þar á eftir er talað um öryrkja og þá á bara að fara í eitthvert samtal við öryrkja. Það á ekki að lækka þá. Hvers vegna á ekki bara að lækka þá samhliða? Það er alveg hægt að gera það, það er sanngjarnt að gera það. Aldraðir mega vinna sér inn tekjur án þess að fá skerðingar. Stundum vilja menn halda áfram að vinna sér inn tekjur. Við viljum að þeir séu aðeins virkir á vinnumarkaðnum. Það vita allir að það er hollt og gott.

Hvað með þá sem eru á atvinnuleysisbótum? Þetta eru allt hópar fólks sem við viljum veita öryggisnet. Aldraðir fá þessar 100.000 kr., það eru 69.000 kr. fyrir þá sem eru á atvinnuleysisbótum. Þeir fá bætur frá ríkinu — en samt er þeim heimilt að vinna sér inn 69.000 kr. án þess að vera skertir, því að við viljum að þeir séu á vinnumarkaðnum. Við viljum að þeir séu með annan fótinn þar og reyni að komast inn á hann.

Það er nákvæmlega það sama og við viljum með öryrkja. Við viljum að öryrkjar geti, þá daga sem þeir hafa þrek og orku til — það er mjög mismunandi — komist út á vinnumarkaðinn. Við munum sjá þetta gerast þegar aðrir flokkar eða flokkar sem setja þetta fólk í meiri forgang — þá munu þessar skerðingar hverfa. Þessar skerðingar munu mögulega hverfa á þessu kjörtímabili ef það verður nógu mikill þrýstingur á ríkisstjórnina (Forseti hringir.) en ég held ekki niðri í mér andanum hvað það varðar. Svo mun þetta mögulega hverfa líka þegar allt menntaða, klára fólkið sem er að detta út af vinnumarkaði út af kulnun fer að þrýsta á sína vini, þá kannski verður kominn nógu mikill pólitískur þrýstingur. En hann er ekki til staðar í dag, ekki hjá þessum flokkum.