149. löggjafarþing — 88. fundur,  2. apr. 2019.

skerðingar vegna atvinnu- og lífeyrissjóðstekna eldri borgara og öryrkja.

[14:47]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Mig langar að þakka hv. þm. Guðmundi Inga Kristinssyni fyrir að hefja umræðu um þetta mál. Þeir einstaklingar sem verða fyrir skerðingum vegna atvinnu- og lífeyrissjóðstekna eru fjölbreyttir og þeir búa við mismunandi kjör. Þessi hópur er jafn mikill þverskurður af þjóðinni og hverjir aðrir. Sú mynd sem þessi staða gefur okkur af samfélaginu er ekkert sérstaklega falleg, ekki síst þegar litið er til áhrifanna á þá tekjuminnstu eða þá sem verst standa. En þetta er líka sanngirnismál. Það eiga allir rétt á því að stjórnvöld komi fram við þá af sanngirni.

Staðreyndin er sú að kerfið sem við höfum byggt upp letur fólk frá vinnu í stað þess að hvetja það áfram. Í því samhengi er mikilvægt að horfa á jákvæð áhrif þess að vera hluti af samfélaginu, t.d. í gegnum vinnu, jákvæð áhrif á heilsuna, bæði líkamlega og andlega, að finna að maður skipti máli. Með þessu er ég ekki að segja að allir eigi að vera knúnir til að vinna, alls ekki, en það er óverjandi að stjórnvöld torveldi fólki sérstaklega að nýta þessi tækifæri sín í samfélaginu.

Hérna er króna á móti krónu skerðingin sennilega mesti áhrifavaldurinn, sú eining innan kerfisins sem virkar mest vinnuhamlandi á umrædda hópa. Þetta er akkúrat sá þáttur sem stjórnvöld hafa boðvald yfir sem á ríkastan þátt í að gera lífeyrisþegum erfitt um vik með að stunda vinnu. Það er óverjandi.

Hvað stendur þá í vegi fyrir úrbótum? Er það kostnaðurinn? Ef hann er svo mikill að hæstv. ríkisstjórn er ómögulegt að afnema skerðingarnar að fullu, af hverju þá ekki að byrja á því að gera það að hluta til og fylgjast með árangrinum, mæla hann, mæla aukningu í atvinnuþátttöku meðal þeirra sem þiggja atvinnu- og lífeyristekjur, bæði eldri borgara og öryrkja, mæla aukninguna í lífsgæðum hjá þeim sem hafa mátt þola skerðingarnar og taka svo að einhverjum tíma liðnum stöðuna og spyrja: Hver hefur kostnaður okkar sem samfélags verið af skerðingunum til þessa dags? (Forseti hringir.) Ég held að það sé komið nóg. Ég held það sé komin full ástæða til að taka raunverulega stöðuna og mæla þetta. Við getum ekki haldið áfram að rífast um þetta hérna og knýja málið ekkert áfram. Það er einfalt að komast að því hver raunkostnaðurinn er og stoppa þetta.