skerðingar vegna atvinnu- og lífeyrissjóðstekna eldri borgara og öryrkja.
Virðulegi forseti. Ég vil við lok þessarar umræðu þakka fyrir hana. Mér hefur fundist hún heilt yfir vera góð og málefnaleg. Ég ætla að enda á því að taka undir með hv. þm. Guðmundi Inga Kristinssyni sem talar um að núverandi kerfi gagnvart örorkulífeyrisþegum sé orðið mikill bútasaumur og þarfnist heildstæðrar endurskoðunar.
Þess vegna erum við einmitt í þeirri vinnu. Ég hef ekki fundið annað hjá þeim fulltrúum sem hér eru í salnum og eru í þessari vinnu, sem eru hv. þm. Guðmundur Ingi Kristinsson, hv. þm. Steinunn Þóra Árnadóttir og hv. þm. Ásmundur Friðriksson, en að bæði í þessari umræðu hér og í þeirra málflutningi sé nokkur samhljómur um þessi mál, sem lýtur að því í fyrsta lagi að einfalda kerfið og í öðru lagi að við horfum til þess að geta gert meira fyrir þá sem sannarlega þurfa á því að halda og hafa minna milli handanna. Þessi vinna miðar öll að því.
En samhliða þurfum við að gera breytingar á kerfinu okkar og styðja betur við endurhæfingu, aðstoða fólk við að koma sér aftur út á vinnumarkaðinn. Eins og sakir standa, ef ungu fólki á örorku fjölgar með sama hætti og verið hefur, breytast tölurnar. Það fóru um 42 milljarðar árið 2016 í þennan málaflokk, í örorkulífeyri. Það verður komið í 90 milljarða árið 2030. Það miðast við að við gerum ekkert, bætum ekki tekjur þeirra hópa sem þarna eru inni.
Þess vegna þurfum við að ná fram kerfisbreytingum og króna á móti krónu skerðingarnar eru einn liður í því en það þarf fleira til, til þess að styðja við fólk til að fara út á vinnumarkaðinn, það sem dettur út af vinnumarkaði. Þess vegna þurfum við þessar kerfisbreytingar vegna þess að við þurfum sannarlega að bæta kjör þessa hóps.
En til þess þurfum við að geta náð (Forseti hringir.) að tryggja að það sé ekki fjölgun með sama hætti og verið hefur. Það held ég að við séum öll sammála um, svona meira og minna.
En ég þakka fyrir umræðuna. Hún var góð og ég þakka hv. þingmanni fyrir að taka málið upp.