149. löggjafarþing — 88. fundur,  2. apr. 2019.

dýrasjúkdómar o.fl.

766. mál
[18:09]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þakka þingmanninum andsvarið. Ég er viss um að umsögn Landssamtaka sauðfjárbænda hefði verið önnur ef þeir hefðu hlustað á mína ræðu hérna áðan. [Hlátur í þingsal.] Ég held að það sé bara alveg á hreinu.

Ég get líka alveg upplýst hv. þingmann um að þessi umsögn Landssamtaka sauðfjárbænda var eins og skrifuð út frá mínu hjarta fyrir þrem, fjórum mánuðum síðan. En batnandi mönnum er best að lifa og það á ekki bara við um mig heldur á það við um fleiri. Takk.