149. löggjafarþing — 88. fundur,  2. apr. 2019.

dýrasjúkdómar o.fl.

766. mál
[18:11]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þakka fyrir annað andsvar.

Spurningin var: Kem ég til með að styðja frumvarpið með viðbættum mótvægisaðgerðum? Ég kom inn á það áðan í ræðu minni að það vantaði að mínu viti upp á þessar mótvægisaðgerðir. Ég vildi í fyrsta lagi að mótvægisaðgerðir yrðu gerðar að þingsályktun og síðan taldi ég upp nokkur atriði, ein fjögur atriði, sem þyrfti að bæta við.

Ég get alveg sagt þér það og verið heiðarlegur í því svari, hv. þm. Birgir Þórarinsson, að ef þessi atriði koma til viðbótar styð ég frumvarpið. Takk.