dýrasjúkdómar o.fl.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Ég held samt að hann hafi að nokkru leyti misskilið spurninguna. Alþjóðlega viðurkennt áhættumat með sérstakri aðferðafræði hefur mér vitanlega ekki farið fram hér á landi. Ég held að það sé nokkuð sem við þurfum að tryggja að verði gert í framtíðinni af því að það getur undirbyggt t.d. lagasetningu á Alþingi á ýmsum sviðum, ekki bara hvað varðar flutning á matvælum milli landa, heldur líka í forgangsröðun í ýmsu í frárennslismálum okkar eða sorphirðu og ýmsu öðru. Þar með stæðum við á traustari grunni í heildaráhættumati, t.d. varðandi hvaða raunveruleg áhætta fylgir ferðaþjónustunni, hvaða forvarnir við ættum að leggja í þar o.s.frv. Þannig að (Forseti hringir.) ég vil að við vöndum okkur betur á þessu sviði til frambúðar.