reglur um skipan skiptastjóra.
Herra forseti. Óánægju gætir nú meðal hluta lögmannastéttarinnar vegna skipanar skiptastjóra yfir þrotabú flugfélagsins WOW. Rætt er um ógagnsætt ferli við skipan skiptastjóra í þrotabúið. Í viðtali við RÚV fyrir skömmu við tvær konur í lögmennsku kom fram, með leyfi forseta:
„Það er enginn hissa á því að tveir miðaldra karlmenn séu skipaðir yfir þessu stóra búi. Það er bara það sem gengur og gerist á hverjum einasta degi í okkar bransa. Því miður. Okkur konunum virðist ekki vera treyst fyrir þessum stóru búum.“
Þá gagnrýna þær einnig að engar reglur séu um skipan skiptastjóra yfir þrotabúum og að einungis kröfuhafar geti haft eftirlit með skráningu tímafjölda. Þær segja engar ákveðnar reglur gilda um þetta og að dómurum sé í sjálfsvald sett hverja þeir skipa. Ljóst er að það hallar verulega á konur við skipan í stór þrotabú.
Síðan er það umhugsunarefni hvort heppilegt sé að lögmaður sé skiptastjóri yfir tveimur stórum þrotabúum samtímis, þ.e. sami lögmaðurinn líkt og raunin er í tilfelli nýskipaðs skiptastjóra yfir þrotabúi WOW.
Það eru ekki bara konur í lögmennsku sem kvarta yfir ógagnsæi í skipan skiptastjóra heldur hefur sú gagnrýni einnig heyrst að héraðsdómstólar séu að úthluta umfangsmiklum hagsmunum eftir eigin hentistefnu. Ég vil því spyrja hæstv. dómsmálaráðherra: Hvaða reglur gilda um úthlutun þrotabúa til skiptastjóra hjá héraðsdómstólum og telur ráðherra að verklag við skipan skiptastjóra sé nægilega gegnsætt?
Í öðru lagi: Er tilefni til þess að breyta lögum eða setja leiðbeinandi reglur til dómstólanna varðandi skipan skiptastjóra?