149. löggjafarþing — 89. fundur,  8. apr. 2019.

reglur um skipan skiptastjóra.

[15:39]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina og svara hér eftir bestu getu. Ég þekki ekki nákvæmlega hvernig verkferlið er hjá dómstólunum en Dómstólasýslan fer með stjórnsýslu dómstólanna og er sjálfstæð stjórnsýslustofnun. Hún var sett á fót í janúar í fyrra, janúar 2018, og síðan þá hefur hún verið að byggja þetta umhverfi upp á þessu sviði. Ég myndi því halda að þetta væri eitthvað sem Dómstólasýslan gæti látið sig varða.

Ég tek undir með hv. þingmanni að það skiptir máli að þessir hlutir séu gagnsæir og aðferðin við þessar úthlutanir, eins og allt annað hjá dómstólum landsins og öðrum þeim sem fara með opinbert vald. Lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla og þau sjónarmið sem þar birtast gilda að sjálfsögðu um skiptastjórn eins og annað. Það eru almenn lög. Ég myndi ætla að það væri eðlilegt að Dómstólasýslan skoði þessa þætti með tilliti til gæðaeftirlits við skiptastjórn.