149. löggjafarþing — 89. fundur,  8. apr. 2019.

reglur um skipan skiptastjóra.

[15:40]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið og vil kannski bæta við tveimur spurningum. Að vísu kom hæstv. ráðherra aðeins inn á aðra spurninguna.

En þá vil ég víkja að kynjamun í þessum efnum, þ.e. þegar kemur að úthlutun stærri þrotabúa til skiptastjóra hjá dómstólum. Þekkir ráðherra til þess að það sé kynjamunur í þessum efnum?

Síðan langar mig að koma aðeins inn á jafnréttislögin. Telur ráðherra að sjónarmið jafnréttislaga um að gæta skuli jafnréttissjónarmiða og vinna að jöfnum áhrifum kvenna og karla í samfélaginu eigi við þegar um úthlutun verkefna á vegum dómstólanna er að ræða?