149. löggjafarþing — 89. fundur,  8. apr. 2019.

reglur um skipan skiptastjóra.

[15:41]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Líkt og ég kom inn á í mínu fyrra svari tel ég blasa við að jafnréttislög eigi við um skiptastjórn eins og aðra þætti. Án þess að ég tjái mig með nokkrum hætti um þessa úthlutun eða þann dómara eða þann dómstól hef ég svo sem ekki yfirsýn yfir það heldur hvernig þessu er skipt og hvernig það kemur út á milli kynja.

Ég þekki heldur ekki til hvort mikill munur sé á þeim sem sækjast eftir því eða hvernig því er úthlutað. Ég hef ekki yfirsýn yfir það.

En ég held að það sé alveg óhætt að hafa augun opin fyrir því að við höfum verk að vinna á þessu sviði. Það á við um lögmennsku eins og annars staðar í samfélaginu.