149. löggjafarþing — 89. fundur,  8. apr. 2019.

þriðji orkupakkinn.

[15:55]
Horfa

utanríkisráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að lesa aftur það sem ég las áðan. Hv. þingmaður getur lesið það sjálfur. Það voru ekki bara þessir lögmenn sem lögðu mat á þetta, það voru tveir aðrir af hálfu utanríkisráðuneytisins og síðan tveir í viðbót, þegar kom að meðförum málsins hjá hæstv. iðnaðarráðherra. Þetta er einfaldlega skoðað af öllum þessum fræðimönnum. Þeir aðilar sem voru íhaldssamastir, ef við getum sagt sem svo, koma með leið sem við leggjum til. Það er ekki þannig, virðulegi forseti, að það hafi verið samstaða um þennan þátt málsins og þess vegna, út frá pólitískum varúðarsjónarmiðum, er þessi leið farin.

Hv. þingmaður spyr hvort það hafi verið unnar einhverjar lagalegar álitsgerðir. Já, þær eru í þingsályktunartillögunni, virðulegi forseti. Þetta er niðurstaðan.