bætt umhverfi menntakerfisins.
Hæstv. forseti. Ég vil bara þakka fyrir þessa fyrirspurn. Mér leikur svolítil forvitni á að vita og vil spyrja hæstv. ráðherra um, af því hér er verið að tala um að byggja upp kennarastétt og samkeppnishæfni: Við vorum í umræðu í fyrra að tala um lesskilning og annað slíkt og komumst að því að árangur þeirra landa þar sem vel gengur næst með því að byggja upp kennarastéttina. Ráðherra kom aðeins inn á það áðan að hér væri farin af stað vinna við að veita styrki og annað slíkt. Ég hefði kannski viljað spyrja ráðherrann aðeins betur út í það, hvort hann gæti farið eitthvað nánar út í hvort það sé meiri vinna þar í gangi.
Ég hlustaði á þætti á dögunum sem eru búnir að vera nokkra sunnudaga í röð um spekileka. Þá er verið að tala um menntun sem sótt er til annarra landa og þekkingin kemur ekki heim aftur. (Forseti hringir.) Þannig að mig langar að spyrja ráðherrann út í þetta með uppbyggingu kennarastéttarinnar til frekari árangurs í menntun fyrir börn og unglinga.